Ferill 660. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1263  —  660. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um fjölda lögreglumanna.


     1.      Hversu margir hafa útskrifast sem lögreglumenn frá árinu 2000?
    Alls hafa 575 manns útskrifast sem lögreglumenn frá árinu 2000, þar af 488 frá Lögregluskóla ríkisins og 87 frá Háskólanum á Akureyri.

     2.      Hversu margir þeirra sem hafa útskrifast sem lögreglumenn frá árinu 2000 starfa enn sem lögreglumenn?
    Alls eru 416 af 575 starfandi á árinu 2020 og er hlutfall þeirra sem eru við störf því 72,3%.     Upplýsingarnar voru fengnar frá mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu, Háskólanum á Akureyri og Fjársýslu ríkisins.