Ferill 559. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1266 — 559. mál.
Svar
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Ísleifssyni um stjórnvaldssektir á smálánafyrirtæki.
1. Hafa verið lagðar stjórnvaldssektir af hálfu Neytendastofu á svokölluð smálánafyrirtæki?
Hugtökin smálán og smálánafyrirtæki eru ekki skilgreind í lögum. Við afmörkun á því hvað teljist til smálána má annars vegar styðjast við skilgreiningu sem lögð var til grundvallar í skýrslu starfshóps um endurskoðun á starfsumhverfi smálánafyrirtækja frá því í janúar 2019 og hins vegar við athugasemdir við frumvarp til laga um neytendalán, nr. 33/2013. Smálánafyrirtæki teljast þá vera fyrirtæki sem veita slík lán.
Í almennum athugasemdum við frumvarp til laga um neytendalán, nr. 33/2013, var lagt til grundvallar að veiting smáláns fælist í því að lántakanum væri veitt lán til skamms tíma og skyldi hann óska eftir útgreiðslu lánsins á heimasíðu lánveitanda eða með því að senda smáskilaboð úr farsíma í fyrir fram greint símanúmer.
Í skýrslu starfshópsins var lagt til grundvallar að smálán teldist vera lánssamningur milli neytanda og lánveitanda sem fæli í sér að lán væri veitt samstundis eða innan skamms tíma í fjarsölu, heildarkostnaður við lántökuna væri umfram hámark árlegrar hlutfallstölu kostnaðar samkvæmt lögum um neytendalán, nr. 33/2013, lánsfjárhæð væri undir 200.000 kr. og lánstími að jafnaði ekki lengri en þrír mánuðir eða endurgreiðsla hlutfallslega mjög há innan þess tíma þó að lánstími væri lengri.
Fyrri skilgreiningin felur ekki í sér skírskotun til ólögmætrar háttsemi en hin síðari gerir það. Með vísan til þess að spurt er um stjórnvaldssektir á smálánafyrirtæki vegna ólögmætrar háttsemi verður stuðst við síðari skilgreininguna.
Neytendastofa hefur lagt á stjórnvaldssektir og dagsektir á smálánafyrirtæki eins og þau eru skilgreind í skýrslu starfshópsins.
2. Ef svo er, hvaða fyrirtæki eiga í hlut og í hverju felast þau brot sem sektað er fyrir? Hverjar eru fjárhæðir umræddra stjórnvaldssekta og hvenær voru þær lagðar á? Hafa umræddar stjórnvaldssektir verið greiddar? Ef svo er ekki, til hvaða aðgerða hefur verið gripið til að tryggja innheimtu þeirra?
Þau fyrirtæki sem í hlut eiga eru þessi:
1. Kredia ehf., kt. 610809-0140.
2. Smálán ehf., kt. 710112-0290.
3. Neytendalán ehf., kt. 570713-0510.
4. E-content ehf., kt. 511115-2210.
Í flestum tilfellum voru sektir lagðar á smálánafyrirtæki vegna brota gegn ákvæði 1. mgr. 26. gr. laga um neytendalán, nr. 33/2013, um hámark árlegrar hlutfallstölu kostnaðar. Brotin felast í því að heildarlántökukostnaður láns er hærri en leyfilegt hámark (50 hundraðshlutar að viðbættum stýrivöxtum í gildistíð eldri laga). Einnig voru lagðar á sektir vegna brota gegn ákvæði 21. gr. laganna um útreikning á árlegri hlutfallstölu kostnaðar. Þá voru lagðar á stjórnvaldssektir vegna ófullnægjandi upplýsinga á stöðluðu eyðublaði og lánssamningi, sbr. 7. gr. og 12. gr. laganna.
Að neðan má sjá yfirlit um fjárhæðir umræddra stjórnvaldssekta og hvenær þær voru lagðar á.
Stjórnvaldssektir (heildarfjárhæð stjórnvaldssekta Neytendastofu nemur samtals 15.150.000 kr.).
1. Ákvörðun nr. 28/2014 hinn 2. júní 2014 gagnvart Kredia ehf., kt. 610809-0140, og Smálánum ehf., kt. 710112-0290, að fjárhæð samtals 500.000 kr. vegna brota á hámarki árlegrar hlutfallstölu kostnaðar. Staðfest hjá áfrýjunarnefnd neytendamála með úrskurði nr. 13/2014. Stefnt fyrir héraðsdóm þar sem Neytendastofa var með dómi nr. E-1934/2015 og E-1935/2015 sýknuð en sektir felldar úr gildi.
2. Ákvörðun nr. 29/2014 hinn 2. júní 2014 gagnvart Neytendalánum ehf. (rekstraraðila Múla, Hraðpeninga og 1909), kt. 570713-0510, að fjárhæð 750.000 kr. vegna brota á hámarki árlegrar hlutfallstölu kostnaðar. Staðfest hjá áfrýjunarnefnd neytendamála með úrskurði nr. 14/2014.
3. Ákvörðun nr. 16/2016 hinn 20. maí 2016 gagnvart Kredia ehf., kt. 610809-0140, að fjárhæð 750.000 kr. vegna brota á hámarki árlegrar hlutfallstölu kostnaðar og upplýsinga á stöðluðu eyðublaði og lánssamningi. Staðfest hjá áfrýjunarnefnd neytendamála með úrskurði nr. 3/2016.
4. Ákvörðun nr. 17/2016 hinn 20. maí 2016 gagnvart Smálánum ehf., kt. 710112-0290, að fjárhæð 750.000 kr. vegna brota á hámarki árlegrar hlutfallstölu kostnaðar og upplýsinga á stöðluðu eyðublaði og lánssamningi. Staðfest hjá áfrýjunarnefnd neytendamála með úrskurði nr. 3/2016.
5. Ákvörðun nr. 59/2016 hinn 14. nóvember 2016 gagnvart E-content ehf., kt. 511115-2210, að fjárhæð 2.400.000 kr. vegna brota á hámarki árlegrar hlutfallstölu kostnaðar og upplýsinga á stöðluðu eyðublaði og lánssamningi. Staðfest hjá áfrýjunarnefnd neytendamála með úrskurði nr. 7/2016. Stefnt fyrir héraðsdóm þar sem Neytendastofa var með dómi nr. E-2895/2017 sýknuð og sekt staðfest, sbr. dóm Landsréttar nr. 227/2019.
6. Ákvörðun nr. 26/2017 hinn 12. júlí 2017 gagnvart E-content ehf., kt. 511115-2210, stjórnvaldssekt að fjárhæð 10.000.000 kr. og dagsektir að fjárhæð 500.000 kr. á dag vegna brota á fyrri ákvörðun. Staðfest hjá áfrýjunarnefnd neytendamála með úrskurði nr. 5/2017.
Dagsektir.
1. Ákvörðun nr. 3/2015 hinn 27. janúar 2015 gagnvart Kredia ehf., kt. 610809-0140, og Smálánum ehf., kt. 710112-0290, að fjárhæð 250.000 kr. á dag þar til farið hefði verið að fyrri ákvörðun.
2. Ákvörðun nr. 3/2015 hinn 10. nóvember 2015 gagnvart Neytendalánum ehf., kt. 570713-0510, að fjárhæð 250.000 kr. á dag þar til farið hefði verið að fyrri ákvörðun.
Um það hvort umræddar stjórnvaldssektir hafi verið greiddar er það að segja að samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, er óheimilt að veita almenningi aðgang að gögnum er varða mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila, sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, nema sá samþykki sem í hlut á. Litið er svo á að spurningin varði upplýsingar um virka fjárhagshagsmuni fyrirtækja og því ekki forsendur til að svara henni. Um aðgang að gögnum um innheimtu stjórnvaldssekta vísast að öðru leyti til Skattsins. Um aðgang að gögnum um afdrif krafna á grundvelli laga um gjaldþrotaskipti, nr. 21/1991, eða laga um aðför, nr. 90/1989, vísast til dómstólanna.
Ráðuneytið aflaði upplýsinga frá Neytendastofu um þær aðgerðir sem gripið hefði verið til svo að tryggja mætti innheimtu stjórnvaldssektanna. Neytendastofa greindi frá því að í kjölfar þess að stofan tæki ákvörðun um stjórnvaldssekt útbyggi stofnunin kröfu í tekju- og bókhaldskerfi ríkisins (TBR) hjá Fjársýslu ríkisins. Skatturinn sér um innheimtu sektanna. Sektir renna í ríkissjóð en ekki til stofnunarinnar. Þegar krafa hefur verið stofnuð gerir Neytendastofa ekkert frekar nema þegar sú staða kemur upp að fella þurfi niður kröfu. Neytendastofa hefur ekki svör varðandi innheimtu umræddra sekta og vísar í því sambandi til innheimtuaðila.