Ferill 736. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1278  —  736. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu.

Frá Oddnýju G. Harðardóttur.

     1.      Hve margir einstaklingar með skerta starfsgetu, sbr. lög um jafna meðferð á vinnumarkaði, starfa í fjármála- og efnahagsráðuneytinu?
     2.      Hefur stefna verið mótuð fyrir ráðuneytið um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu?


Skriflegt svar óskast.