Ferill 746. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1292  —  746. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um lögbundin verkefni ríkislögmanns.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir ríkislögmaður?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna ríkislögmanns og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.