Ferill 752. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1298  —  752. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um lögbundin verkefni skattrannsóknarstjóra ríkisins.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir skattrannsóknarstjóri ríkisins?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna skattrannsóknarstjóra ríkisins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.