Ferill 754. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1300  —  754. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um lögbundin verkefni Ríkiseigna.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinna Ríkiseignir?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Ríkiseigna og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.