Ferill 758. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1304  —  758. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um lögbundin verkefni Bankasýslu ríkisins.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Bankasýsla ríkisins?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Bankasýslu ríkisins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.