Ferill 726. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1323 — 726. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Frá efnahags- og viðskiptanefnd.
1. Við 1. gr.
a. Í stað „LIV“ í a-lið komi: LXIV.
b. Í stað orðsins „hann“ í síðari málslið 3. mgr. a-liðar komi: lögaðilinn.
c. Á eftir 2. málsl. 5. mgr. a-liðar komi nýr málsliður, svohljóðandi: Skattinum skal heimilt að fella niður dráttarvexti þegar lögaðili sem frestar skattgreiðslu skv. 1. mgr. getur sýnt fram á að hann hafi haft réttmæta ástæðu, þegar Skattinum var tilkynnt um frestun skv. 4. mgr., til að ætla að skatteign skv. 2. mgr. næmi að lágmarki fjárhæð jafnri hinni frestuðu skattgreiðslu.
d. Lokamálsliður 5. mgr. a-liðar verði 6. mgr.
e. Í stað „LV“ í b-lið komi: LXV.
f. 4. og 5. mgr. b-liðar falli brott.
g. Við bætast tveir nýir liðir, svohljóðandi:
a. (LXVI.)
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 98. gr. er Skattinum ekki skylt að leggja fram álagningarskrá fyrir hvert sveitarfélag að lokinni álagningu skattaðila á árinu 2020 vegna tekna ársins 2019.
b. (LXVII.)
Þrátt fyrir ákvæði 1. tölul. B-liðar 1. mgr. 30. gr. skal einstaklingi heimilt að draga frá tekjuskattsstofni sínum, sbr. 1. og 3. gr., að viðbættum fjármagnstekjum, 75% af fjárhæð sem hann sýnir fram á að sé tilkomin vegna fjárfestinga í hlutafélagi eða einkahlutafélagi sem uppfyllir skilyrði 2. og 3. mgr. 1. tölul. B-liðar 1. mgr. 30. gr. við álagningu opinberra gjalda á árunum 2021 og 2022, vegna fjárfestinga á árunum 2020 og 2021. Jafnframt skal einstaklingi heimilt, þrátt fyrir ákvæði 2. tölul. 2. mgr. 1. tölul. B-liðar 1. mgr. 30. gr. að nýta frádráttarheimild vegna heildarfjárfestinga sem nemi að hámarki 15 millj. kr. á almanaksári 2020 og 2021. Að öðru leyti gilda ákvæði B-liðar 1. mgr. 30. gr.
2. Við 2. gr.
a. A-liður orðist svo: Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 10. gr. skal nýsköpunarfyrirtæki sem er eigandi að rannsóknar- eða þróunarverkefnum sem hlotið hafa staðfestingu skv. 5. gr. eiga rétt á sérstökum frádrætti frá álögðum tekjuskatti árin 2021 og 2022 sem nemur 35 hundraðshlutum af útlögðum kostnaði vegna þessara verkefna í tilviki lítilla og meðalstórra fyrirtækja en 25 hundraðshlutum í tilviki stórra fyrirtækja enda sé um að ræða frádráttarbæran rekstrarkostnað í skilningi 1. mgr. 1. tölul. 31. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003.
b. B- og c-liður verði einn liður og orðist svo: Þrátt fyrir ákvæði 2. og 3. málsl. 1. mgr. 10. gr. skal hámark kostnaðar til útreiknings á frádrætti frá álögðum tekjuskatti árin 2021 og 2022 vera samtals 1.100.000.000 kr., þar af skal heimilt að telja til þeirrar fjárhæðar allt að 200.000.000 kr. vegna aðkeyptrar rannsóknar- eða þróunarvinnu skv. 6. gr.
3. 4. gr. orðist svo:
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 7. mgr. 36. gr. c er lífeyrissjóði heimilt að eiga allt að 35% í stað 20% af hlutdeildarskírteinum eða hlutum í sjóðum um sameiginlega fjárfestingu eða einstakri deild þeirra, þó aldrei umfram 1% heildareigna sinna í hverjum sjóði um sameiginlega fjárfestingu samkvæmt þessari málsgrein. Heimildin nær til sjóða um sameiginlega fjárfestingu sem eingöngu fjárfesta í litlum eða meðalstórum fyrirtækjum skv. 1. og 2. tölul. 3. gr. laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Innlausnir í sjóðunum skulu fyrst fara fram að fimm árum liðnum frá því að þeir hófu fjárfestingar.
Heimild skv. 1. mgr. gildir til 1. janúar 2025 en þó verður lífeyrissjóði ekki gert að innleysa hlutdeildarskírteini eða hluti sem fjárfest var í á grundvelli hennar.
4. 9. gr. orðist svo:
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Á árinu 2020 er ráðherra heimilt að veita sérstakan rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla. Skilyrði fyrir sérstökum rekstrarstuðningi er m.a. að einkarekinn fjölmiðill sé ekki í vanskilum með opinber gjöld, skatta og skattasektir sem komnar voru á eindaga fyrir lok árs 2019 og að álagðir skattar og gjöld byggist ekki á áætlunum vegna vanskila á skattframtölum og skýrslum, þ.m.t. staðgreiðslugreinum og virðisaukaskattsskýrslum til Skattsins síðastliðin þrjú ár áður en umsókn barst eða síðan fjölmiðillinn hóf starfsemi ef það var síðar. Ráðherra skal í reglugerð tilgreina fyrirkomulag umsókna einkarekinna fjölmiðla um rekstrarstuðning. Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um greitt tryggingagjald, meðalfjölda stöðugilda, fjölda verktaka og heildarfjárhæð greiðslna til þeirra vegna miðlunar á fréttum og fréttatengdu efni árið 2019. Upplýsingarnar skulu staðfestar af endurskoðanda.
Við ákvörðun um fjárhæð sérstaks rekstrarstuðnings skal m.a. litið til launa, fjölda starfsmanna og verktakagreiðslna vegna miðlunar á fréttum og fréttatengdu efni á ritstjórnum árið 2019, útgáfutíðni og fjölbreytileika fjölmiðla. Endanlegt hlutfall ræðst af fjölda umsókna og skal setja hámark á stuðning til einstakra fjölmiðla. Úthlutun sérstaks rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla skal fara fram eigi síðar en 1. september 2020.
Ráðherra skal útfæra nánar fyrirkomulag sérstaks rekstrarstuðnings í reglugerð.
5. Við bætist tveir nýir kaflar, VIII. kafli, Breyting á lögum um listamannalaun, nr. 57/2009, og IX. kafli, Breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með einni grein hvor, svohljóðandi:
a. (10. gr.)
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir 5. gr. skulu samanlögð starfslaun árið 2020 miðast við 2.200 mánaðarlaun. Þrátt fyrir ákvæði 6.–11. gr. skulu starfslaun og styrkir til listamanna árið 2020 vera sem hér segir:
a. Starfslaun og styrkir hönnuða árið 2020 skulu svara til 69 mánaðarlauna.
b. Starfslaun og styrkir myndlistarmanna árið 2020 skulu svara til 598 mánaðarlauna.
c. Starfslaun og styrkir rithöfunda árið 2020 skulu svara til 763 mánaðarlauna.
d. Starfslaun og styrkir sviðslistafólks árið 2020 skulu svara til 261 mánaðarlauna.
e. Starfslaun og styrkir tónlistarflytjenda árið 2020 skulu svara til 248 mánaðarlauna.
f. Starfslaun og styrkir tónskálda árið 2020 skulu svara til 261 mánaðarlauna.
b. (11. gr.)
Við 2. mgr. 23. tölul. ákvæðis til bráðabirgða í lögunum bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sama gildir um örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega sem ekki áttu rétt á desemberuppbót 2019 en eiga rétt á orlofsuppbót á árinu 2020, sbr. 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2020, nr. 1124/2019.
6. Síðari málsliður 10. gr. falli brott.
7. Fyrirsögn frumvarpsins verði: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru (frekari aðgerðir).