Ferill 726. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Prentað upp.
Þingskjal 1326 — 726. mál.
Lagfæring.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um frekari aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Frá Jóni Steindóri Valdimarssyni.
1. Við 2. gr.
a. A-liður orðist svo: Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 10. gr. skal nýsköpunarfyrirtæki, sem er eigandi að rannsóknar- eða þróunarverkefnum er hlotið hafa staðfestingu skv. 5. gr., eiga rétt á sérstökum frádrætti frá álögðum tekjuskatti árin 2021 og 2022 sem nemur 45 hundraðshlutum af útlögðum kostnaði vegna þessara verkefna í tilviki lítilla fyrirtækja, 35 hundraðshlutum í tilviki meðalstórra fyrirtækja og 25 hundraðshlutum í tilviki stórra fyrirtækja enda sé um að ræða frádráttarbæran rekstrarkostnað í skilningi 1. tölul. 1. mgr. 31. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003.
b. Í stað „1.100.000.000 kr.“ í c-lið komi: 1.500.000.000 kr.
c. Orðin „árin 2021 og 2022“ hvarvetna í greininni falli brott.
2. 2. efnismgr. 4. gr. falli brott.
3. Við bætist nýr kafli, VIII. kafli, Breyting á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990, með síðari breytingum, með einni grein sem orðist svo:
Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
a. (XII.)
Þrátt fyrir 1. og 3. mgr. 2. gr. skal atvinnutryggingagjald vera 1,0125% og almennt tryggingagjald vera 3,675% af gjaldstofni skv. III. kafla frá 1. júlí 2020 til 1. janúar 2021.
b. (XIII.)
Þrátt fyrir 1. og 3. mgr. 2. gr. skal atvinnutryggingagjald vera 0,3375% og almennt tryggingagjald vera 1,225% af gjaldstofni skv. III. kafla frá 1. júlí 2020 til 1. júlí 2021 vegna launa eða þóknana manna sem hefja störf hjá gjaldskyldum aðila á tímabilinu og eru ráðnir af atvinnuleysisskrá eða voru án atvinnu við upphaf ráðningar.