Ferill 778. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1357  —  778. mál.




Fyrirspurn


til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um lögbundin verkefni Verðlagsstofu skiptaverðs.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Verðlagsstofa skiptaverðs?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Verðlagsstofu skiptaverðs og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.