Ferill 779. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1358  —  779. mál.




Fyrirspurn


til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um lögbundin verkefni Matvælastofnunar.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Matvælastofnun?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Matvælastofnunar og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.