Ferill 782. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1361  —  782. mál.




Fyrirspurn


til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um lögbundin verkefni Matís ohf.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Matís ohf.?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Matís ohf. og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.