Ferill 795. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1397  —  795. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um lögbundin verkefni Landspítala.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Landspítali?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Landspítala og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.