Ferill 817. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1439 — 817. mál.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um lögbundin verkefni á málefnasviði ráðherra.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hvaða lögbundnu verkefnum á málefnasviði ráðherra sinnir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið?
2. Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna á málefnasviði ráðherra og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
Skriflegt svar óskast.