Ferill 818. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1440  —  818. mál.




Fyrirspurn


til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um lögbundin verkefni Samkeppniseftirlitsins.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Samkeppniseftirlitið?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Samkeppniseftirlitsins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.