Ferill 821. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1443  —  821. mál.




Fyrirspurn


til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um lögbundin verkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Nýsköpunarmiðstöð Íslands?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.