Ferill 383. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1447  —  383. mál.
2. umræða.



Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999 (öldungaráð).

Frá velferðarnefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ernu Kristínu Blöndal, Birnu Sigurðardóttur og Þór Hauksson Reykdal frá félagsmálaráðuneytinu.
    Nefndinni barst umsögn frá Öldungaráði Akraneskaupstaðar.

Efni og markmið frumvarpsins.
    Árið 2018 var gerð breyting á stjórnsýslu öldrunarmála með lögum nr. 37/2018, um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Markmið þeirrar breytingar var m.a. að innleiða samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. M.a. var gerð breyting á svæðaskiptingu og skipan fulltrúa í öldungaráð. Á sama tíma var gerð breyting á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, og hugtakinu „þjónustuhópur aldraðra“ breytt í hugtakið „öldungaráð“. Hins vegar var ekki gerð samhliða breyting á svæðaskiptingu og skipun fulltrúa í lögum um málefni aldraðra líkt og gert var í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Markmið þessa frumvarps er að samræma ákvæði laganna.

Umfjöllun nefndarinnar.
    
Nefndinni barst ein umsögn um málið og var hún jákvæð. Í ljósi þess að um er að ræða nauðsynlega breytingu til að samræma ákvæði milli tveggja lagabálka og að sátt er um málið leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Anna Kolbrún Árnadóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Hanna Katrín Friðriksson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 18. maí 2020.

Helga Vala Helgadóttir,
form.
Ásmundur Friðriksson,
frsm.
Ólafur Þór Gunnarsson.
Guðmundur Ingi Kristinsson. Halla Signý Kristjánsdóttir. Halldóra Mogensen.
Lilja Rafney Magnúsdóttir. Vilhjálmur Árnason.