Ferill 825. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1449  —  825. mál.




Fyrirspurn


til utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra um framkvæmdir á vegum NATO hér á landi.

Frá Páli Magnússyni.


     1.      Að hvaða verkefnum í varnarmálum er unnið hér á landi í samstarfi íslenskra stjórnvalda við Norður-Atlantshafsbandalagið (NATO) og bandarísk stjórnvöld?
     2.      Hvaða framkvæmdir aðrar hafa verið ákveðnar eða kunna að vera fram undan?
     3.      Hver er áætlaður kostnaður við hverja framkvæmd fyrir sig?
     4.      Bera Íslendingar einhvern kostnað af þessum framkvæmdum og ef svo er, hversu mikinn?
     5.      Liggur fyrir áætlun um hvenær þessar framkvæmdir hefjast og hvenær þeim lýkur?