Ferill 827. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1451  —  827. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um ræstingarþjónustu.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


     1.      Hvernig er ræstingu sinnt hjá ráðuneytinu og stofnunum þess? Óskað er sundurliðunar eftir stofnunum og að fram komi kostnaður árið 2019 þar sem þjónustan var aðkeypt og meðalfjöldi stöðugilda árið 2019 þar sem ræstingu er sinnt af starfsfólki á launaskrá.
     2.      Á hvaða hátt tryggir verkkaupi að ekki sé um félagsleg undirboð að ræða í þeim tilvikum þegar ræstingu er útvistað?


Skriflegt svar óskast.