Ferill 836. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1467 — 836. mál.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um ræstingarþjónustu.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hvernig er ræstingu sinnt hjá þeim stofnunum sem eru á málefnasviði ráðherra? Óskað er sundurliðunar eftir stofnunum og að fram komi kostnaður árið 2019 þar sem þjónustan var aðkeypt og meðalfjöldi stöðugilda árið 2019 þar sem ræstingu er sinnt af starfsfólki á launaskrá.
2. Á hvaða hátt tryggir verkkaupi að ekki sé um félagsleg undirboð að ræða í þeim tilvikum þegar ræstingu er útvistað?
Skriflegt svar óskast.