Ferill 850. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1505  —  850. mál.




Fyrirspurn


til félags- og barnamálaráðherra um lögbundin verkefni ríkissáttasemjara.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir ríkissáttasemjari?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna ríkissáttasemjara og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.