Ferill 852. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1507  —  852. mál.




Fyrirspurn


til félags- og barnamálaráðherra um lögbundin verkefni Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.

     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.