Ferill 868. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1523 — 868. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um lögbundin verkefni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum?
2. Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
Skriflegt svar óskast.