Ferill 811. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1555 — 811. mál.
Frumvarp til laga
um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
(Eftir 2. umræðu, 29. maí.)
1. gr.
Gildissvið.
Lögin gilda um fjárstuðning til þeirra atvinnurekenda sem hafa sagt launamönnum upp störfum vegna verulegrar fjárhagslegrar röskunar á atvinnurekstri sínum og orsakir þess verða raktar beint eða óbeint til ráðstafana sem gripið hefur verið til eða aðstæðna sem að öðru leyti hafa skapast vegna faraldurs kórónuveiru sem hófst hér á landi í febrúar 2020.
2. gr.
Markmið.
3. gr.
Orðskýringar.
1. Atvinnurekstur: Starfsemi sem rekin er í hagnaðarskyni og þar sem laun eru greidd skv. 1. tölul. 5. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, og er skráð á launagreiðendaskrá, svo og á virðisaukaskattsskrá þegar það á við.
2. Atvinnurekandi: Einstaklingur eða lögaðili sem vegna atvinnureksturs síns greiðir starfsmönnum sínum laun á uppsagnarfresti í samræmi við ákvæði kjara- eða ráðningarsamnings.
3. Launamaður: Hver sá sem vinnur launað starf í annarra þjónustu samkvæmt ráðningarsamningi.
4. Launakostnaður: Til launakostnaðar teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir skv. 1. tölul. 5. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, ásamt iðgjaldi í lífeyrissjóð, að hámarki 11,5% af iðgjaldsstofni skv. 3. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, og allt að 2% af iðgjaldsstofni samkvæmt gildandi samningi um viðbótartryggingavernd, sbr. 2. og 9. gr. sömu laga.
5. Tekjur: Skattskyldar tekjur skv. B-lið 7. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, að frátöldum hagnaði af sölu rekstrareigna.
6. Uppsagnardagur: Sá dagur þegar uppsögn launamanns kemur til framkvæmda.
4. gr.
Skilyrði.
1. Hann sagði viðkomandi launamönnum, sem ráðnir höfðu verið fyrir 1. maí 2020, upp störfum vegna aðstæðna sem sköpuðust vegna faraldurs kórónuveiru.
2. Meðaltal mánaðartekna hans frá 1. apríl 2020 og til uppsagnardags hefur lækkað um a.m.k. 75% í samanburði við eitt af eftirtöldu:
a. meðaltal mánaðartekna sama tímabils árið áður,
b. meðaltal mánaðartekna júní, júlí og ágúst árið áður,
c. meðaltal mánaðartekna á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 29. febrúar 2020, eða
d. meðaltal mánaðartekna á tímabilinu 1. apríl 2019 til 31. mars 2020.
3. Hann hefur eftir 15. mars 2020 ekki ákvarðað úthlutun arðs, lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa, kaup eigin hluta, innt af hendi aðra greiðslu til eiganda á grundvelli eignaraðildar hans, greitt óumsaminn kaupauka, greitt af víkjandi láni fyrir gjalddaga eða veitt eiganda eða aðila nákomnum eiganda lán eða annað fjárframlag sem ekki varðar öflun, tryggingu eða viðhald rekstrartekna. Jafnframt skuldbindur hann sig til að gera enga framangreinda ráðstöfun fyrr en fjárstuðningurinn hefur að fullu verið tekjufærður skv. 9. gr. eða endurgreiddur skv. 10. gr.
4. Hann er ekki í vanskilum með opinber gjöld, skatta og skattsektir sem komnar voru á eindaga 31. desember 2019 og álagðir skattar og gjöld byggjast ekki á áætlunum. Hann hefur staðið skil á skattframtali og fylgigögnum þess, þ.m.t. skýrslu um eignarhald á CFC-félagi, sbr. 10. gr. reglugerðar um skattlagningu vegna eignarhalds í lögaðilum á lágskattasvæðum, nr. 1102/2013, og öðrum skýrslum og skilagreinum, svo sem staðgreiðsluskilagreinum og virðisaukaskattsskýrslum, til Skattsins síðastliðin þrjú ár áður en umsókn barst eða síðan hann hóf starfsemi ef það var síðar. Að auki skal hann, eftir því sem við á og á sama tímabili, hafa staðið skil á ársreikningum, sbr. lög um ársreikninga, nr. 3/2006, og upplýst um raunverulega eigendur, sbr. lög um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019.
5. Hann hefur ekki verið tekinn til slita eða bú hans til gjaldþrotaskipta.
5. gr.
Undanþága frá skilyrði um arðsúthlutun.
Skilyrði fyrir undanþágu skv. 1. mgr. er að hún sé veitt til úthlutunar arðs vegna nýs hlutafjár sem nýtur forgangs til arðgreiðslna, sbr. 12. tölul. 2. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 20. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, enda hafi ákvörðun um hækkun hlutafjár með áskrift nýrra hluta verið tekin vegna fjárhagslegra örðugleika sem stafa beint eða óbeint af heimsfaraldri kórónuveiru og nýjum hlutum verið ákveðinn forgangur til arðs, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 36. gr. sömu laga.
6. gr.
Afmörkun stuðnings.
1. Stuðningurinn nemur að hámarki 85% af launakostnaði launamanns á uppsagnarfresti, miðað við ráðningarkjör hans 1. maí 2020, þó að hámarki 633.000 kr. á mánuði vegna launa og að hámarki 85.455 kr. á mánuði vegna lífeyrissjóðsiðgjaldshluta atvinnurekanda, fyrir fullt starf og hlutfallslega fyrir hlutastarf.
2. Stuðningurinn nær til þeirra uppsagna sem hafa uppsagnardag frá og með 1. maí 2020 og til og með 1. október 2020. Hafi atvinnurekandi sagt upp launamanni með uppsagnardag fyrir 1. maí, en uppfyllir að öðru leyti skilyrði laga þessara, getur atvinnurekandi sótt um stuðning vegna launa á uppsagnarfresti sem koma til greiðslu vegna vinnu í maí og júní 2020. Hámarkstímabil stuðnings vegna hvers launamanns er þrír mánuðir en þó aldrei lengra en samnings- eða lögbundinn uppsagnarfrestur kveður á um.
3. Vegna orlofslauna sem launamaður kann að eiga rétt á og fær greidd við starfslok greiðist að auki sérstakur stuðningur að hámarki 85% orlofslauna, þó að hámarki 1.014.000 kr. fyrir fullt starf og hlutfallslega fyrir launamann í hlutastarfi.
7. gr.
Umsókn.
Atvinnurekandi skal staðfesta við umsókn að hann uppfylli skilyrði 4. gr., að upplýsingar sem hann skilar og liggja til grundvallar ákvörðun fjárhæðar skv. 6. gr. séu réttar og að honum sé kunnugt um að það geti varðað álagi, sektum eða fangelsi að veita rangar eða ófullnægjandi upplýsingar.
8. gr.
Ákvörðun og greiðsla.
Stuðningsfjárhæð skal greidd úr ríkissjóði innan þriggja virkra daga frá því að hún var ákvörðuð.
Við afgreiðslu umsóknar og endurskoðun ákvörðunar um umsókn getur Skatturinn farið fram á að atvinnurekandi sýni með rökstuðningi og gögnum fram á rétt sinn til stuðnings samkvæmt lögum þessum.
Skatturinn skal endurákvarða stuðningsfjárhæð komi í ljós að atvinnurekandi hafi ekki átt rétt á stuðningnum eða hafi átt rétt á hærri eða lægri fjárhæð en hann fékk greidda.
Að því leyti sem ekki er á annan veg kveðið á um í lögum þessum gilda ákvæði 94.–97. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, eftir því sem við getur átt um afgreiðslu umsókna og endurákvarðanir stuðnings.
Stjórnvaldsákvarðanir Skattsins samkvæmt lögum þessum eru endanlegar á stjórnsýslustigi.
9. gr.
Tekjufærsla.
10. gr.
Endurgreiðsla.
11. gr.
Breyttar aðstæður launamanns.
12. gr.
Réttindi launamanns.
Komi til ráðningar að nýju skal launamaður halda þeim réttindum sem hann hafði unnið sér inn þegar til uppsagnar kom í samræmi við ákvæði kjarasamninga.
13. gr.
Ofgreiðsla.
Hafi atvinnurekandi veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar eða upplýsingagjöf hans verið svo áfátt að áhrif hafi haft við ákvörðun um stuðning skal Skatturinn gera honum að greiða 50% álag á kröfu um endurgreiðslu. Fella skal álagið niður ef atvinnurekandi færir rök fyrir því að óviðráðanleg atvik hafi hamlað því að hann veitti réttar upplýsingar eða kæmi leiðréttingu á framfæri við Skattinn. Telji Skatturinn að háttsemi atvinnurekanda geti varðað sektum eða fangelsi skal hann ekki gera honum að greiða álag heldur kæra málið til lögreglu.
Ákvarðanir Skattsins um endurgreiðslur ofgreidds stuðnings eru aðfararhæfar skv. 9. tölul. 1. mgr. 1. gr. laga um aðför, nr. 90/1989.
Um innheimtu ofgreidds stuðnings fer samkvæmt lögum um innheimtu opinberra skatta og gjalda, nr. 150/2019, þar á meðal um skuldajöfnun og heimild til að gera greiðsluáætlun. Skatturinn annast á landsvísu innheimtu ofgreidds stuðnings samkvæmt lögum þessum.
14. gr.
Gjaldþrot.
15. gr.
Birting upplýsinga.
16. gr.
Viðurlög.
17. gr.
Reglugerðarheimild.
18. gr.
Gildistaka.