Ferill 329. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1558 — 329. mál.
Frumvarp til laga
um Menntasjóð námsmanna.
(Eftir 2. umræðu, 29. maí.)
I. KAFLI
Markmið og lánsréttur.
1. gr.
Markmið.
2. gr.
Framfærslulán og skólagjaldalán.
Miða skal við að framfærslulán nægi hverjum námsmanni til að standa straum af almennum framfærslukostnaði á Íslandi meðan á námi stendur að teknu tilliti til fjölskyldustærðar námsmanns og búsetu. Mæla skal fyrir um staðaruppbót í úthlutunarreglum.
Heimilt er að veita námslán vegna skólagjalda í skóla og til náms sem er viðurkennt samkvæmt lögum þessum og er skipulagt sem a.m.k. 45 ECTS-eininga nám eða ígildi þeirra á hverju skólaári.
Nánar skal mælt fyrir um framkvæmd þessa í úthlutunarreglum, þ.m.t. hámark skólagjaldalána, lágmarkssjálfsaflafé námsmanna og takmarkanir miðað við t.d. sjálfsaflafé og námsframvindu námsmanns.
3. gr.
Önnur lán.
1. búsetu hjá efnalitlum foreldrum,
2. maka,
3. röskunar á stöðu og högum námsmanns,
4. sjúkratrygginga,
5. ferðakostnaðar.
Í úthlutunarreglum skal mæla fyrir um framkvæmd 1. mgr. Heimilt er að skilyrða réttinn til láns samkvæmt þessari grein, m.a. með því að setja hámark á lánsfjárhæð, gera kröfu um tiltekna námsframvindu, óska eftir upplýsingum frá námsmönnum, mökum og foreldrum í samræmi við 12. gr. eða takmarka fjárhæð lána vegna tekna foreldra og námsmanns.
4. gr.
Lánsréttur.
Lánsréttur námsmanns skal vera fyrir 420 ECTS-einingum eða ígildi þeirra. Heimilt er í úthlutunarreglum að skipta lánsrétti milli námsstiga.
Heimilt er að veita námslán til doktorsnáms fyrir 60 ECTS-einingum til viðbótar við þær einingar sem kveðið er á um í 2. mgr.
II. KAFLI
Lánshæft nám.
5. gr.
Háskólanám.
Veitt eru námslán til náms á háskólastigi við háskóla erlendis enda séu þeir viðurkenndir af menntamálayfirvöldum landsins og námi ljúki með prófgráðu á háskólastigi.
Hlutanám, svo sem nám sem er skipulagt samhliða vinnu, er eingöngu lánshæft til skólagjalda, sbr. 3. mgr. 2. gr.
6. gr.
Aðfaranám.
Veitt eru námslán til aðfaranáms erlendis, enda séu skólar þeir sem bjóða upp á námið viðurkenndir af menntamálayfirvöldum landsins.
Heimilt er að veita námslán vegna tungumálanáms sem telst nauðsynlegur undirbúningur undir lánshæft nám.
Nám á framhaldsskólastigi sem leiðir til stúdentsprófs er ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.
7. gr.
Starfsnám og viðbótarnám við framhaldsskóla.
1. námið hafi fengið samþykki frá viðkomandi starfsgreinaráði, ef við á,
2. námslok séu á a.m.k. þriðja hæfniþrepi,
3. sambærilegt nám sé almennt ekki í boði á háskólastigi hér á landi.
Skilyrði er að skólinn hafi hlotið viðurkenningu ráðherra til kennslu á framhaldsskólastigi samkvæmt lögum um framhaldsskóla.
Veita skal námslán til sambærilegs náms erlendis enda sé það viðurkennt af menntamálayfirvöldum landsins. Námslán samkvæmt þessari málsgrein skal að öðru leyti vera háð sömu skilyrðum og eiga við um námslán vegna náms skv. 1. mgr. eins og við á hverju sinni.
III. KAFLI
Réttur til námsaðstoðar.
8. gr.
Almenn skilyrði.
1. stunda lánshæft nám, sbr. II. kafla,
2. eru fjárráða,
3. uppfylla kröfur um lágmarksnámsframvindu samkvæmt úthlutunarreglum,
4. eru ekki í vanskilum við Menntasjóð námsmanna,
5. þiggja ekki námslán eða sambærilega aðstoð frá öðru ríki vegna lánshæfs náms,
6. uppfylla aðrar kröfur sem lög þessi gera til veitingar og endurgreiðslu námsaðstoðar.
9. gr.
Réttur til aðstoðar vegna náms á Íslandi.
1. er íslenskur ríkisborgari,
2. er ríkisborgari Danmerkur, Finnlands, Noregs eða Svíþjóðar,
3. er ríkisborgari EES- eða EFTA-ríkis auk þess að vera launþegi eða sjálfstætt starfandi á Íslandi og heldur áfram vinnu hér á landi meðan á námi stendur eða heldur stöðu sinni sem slíkur,
4. er aðstandandi ríkisborgara skv. 3. tölul.,
5. er ríkisborgari EES- eða EFTA-ríkis og hefur öðlast rétt til ótímabundinnar dvalar hérlendis,
6. er aðstandandi ríkisborgara skv. 5. tölul.,
7. er erlendur ríkisborgari og er í hjúskap eða hefur um tveggja ára skeið verið í skráðri sambúð með íslenskum ríkisborgara og hefur átt lögheimili á Íslandi í að lágmarki tvö ár af síðastliðnum fimm árum áður en nám hefst,
8. hefur dvalarleyfi hér á landi sem flóttamaður,
9. hefur ótímabundið dvalarleyfi hér á landi.
Heimilt er í úthlutunarreglum að mæla nánar fyrir um skilyrði fyrir aðstoð vegna náms á Íslandi, t.d. lágmarksvinnuframlag til að teljast launþegi eða sjálfstætt starfandi skv. 3. tölul. 1. mgr.
10. gr.
Réttur til aðstoðar vegna náms erlendis.
1. hefur búið á Íslandi í að lágmarki tvö ár af síðastliðnum fimm árum áður en nám hefst,
2. hefur sterk tengsl við íslenskt samfélag að mati Menntasjóðs námsmanna.
Við mat á tengslum við íslenskt samfélag skal m.a. líta til ríkisborgararéttar, tíma sem námsmaður hefur búið eða starfað hér á landi og fjölskyldutengsla á Íslandi.
Námsmenn sem uppfylla eitt af skilyrðum 3.–6. tölul. 1. mgr. 9. gr. eru undanþegnir skilyrði 1. tölul. 1. mgr. um búsetu á Íslandi vegna náms innan EES- eða EFTA-ríkis.
Heimilt er í úthlutunarreglum að mæla nánar fyrir um skilyrði fyrir aðstoð vegna náms erlendis, þ.m.t. hvernig skuli meta tengsl við íslenskt samfélag.
IV. KAFLI
Umsókn, upplýsingagjöf og námsframvinda.
11. gr.
Umsókn, samtímagreiðslur og ábyrgðarmenn.
Námsmenn sem fá námslán úr Menntasjóði námsmanna skulu undirrita skuldabréf við lántöku teljist þeir tryggir lánþegar samkvæmt úthlutunarreglum.
Þeir sem teljast ekki tryggir lánþegar geta lagt fram ábyrgðir sem Menntasjóðurinn telur viðunandi. Ábyrgðir geta m.a. verið fasteignaveð, ábyrgðaryfirlýsing fjármálastofnunar eða yfirlýsing ábyrgðarmanns um sjálfskuldarábyrgð á endurgreiðslu námsláns með sömu skilmálum og lán lánþega er með, allt að tiltekinni fjárhæð.
Menntasjóðnum er heimilt að veita námslán allt að hámarksfjárhæð samkvæmt úthlutunarreglum eða að þeirri fjárhæð sem ábyrgð hefur verið veitt fyrir skv. 3. mgr.
Sjóðstjórn ákveður hvaða skilyrðum ábyrgðarmenn skuli fullnægja. Ábyrgð ábyrgðarmanns, eins eða fleiri, getur fallið niður enda setji námsmaður aðra tryggingu sem sjóðstjórn metur fullnægjandi. Ábyrgð ábyrgðarmanns fellur niður við andlát hans enda sé lánþegi í skilum við Menntasjóðinn.
Lánþegar geta valið um hvort námslán þeirra séu greidd út mánaðarlega eða í lok hverrar annar.
12. gr.
Upplýsingagjöf.
Innlendum skólum sem lög þessi taka til er skylt að láta Menntasjóði námsmanna í té nauðsynlega aðstoð við framkvæmd laganna, þar á meðal upplýsingar um framvindu náms lánþega.
Ríkisskattstjóra er skylt að láta Menntasjóðnum eða innheimtuaðila námslána í té upplýsingar um lánþega sem nauðsynlegar eru við framkvæmd laga þessara, þar á meðal upplýsingar um tekjur lánþega og tekjur maka og foreldra lánþega þegar við á.
Menntasjóðurinn skal upplýsa umsækjendur og aðra hlutaðeigandi aðila um heimildir Menntasjóðsins eða innheimtuaðila námslána til vinnslu persónuupplýsinga. Skal þar koma fram frá hverjum aflað er upplýsinga, um hvaða upplýsingar er að ræða og í hvaða tilgangi unnið er með þær. Við meðferð persónuupplýsinga sem aflað er vegna umsóknar um námslán eða umsóknar um frestun endurgreiðslu skv. 23. gr., eða vegna framkvæmdar laga þessara að öðru leyti, skal Menntasjóðurinn gæta þess að uppfyllt séu skilyrði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglur sem settar eru á grundvelli þeirra.
13. gr.
Námsframvinda.
Veita má undanþágu frá kröfum um lágmarksnámsframvindu sé lánþega það vandkvæðum bundið að mati sjóðstjórnar að stunda nám skv. 1. mgr. vegna örorku, lesblindu, sértækra námsörðugleika, alvarlegra veikinda, barneigna eða vegna þess að tímabundið stendur ekki til boða fullt nám samkvæmt skipulagi skóla eða af öðrum sambærilegum ástæðum. Heimilt er í úthlutunarreglum að mæla nánar fyrir um framkvæmd þessa og setja skilyrði m.a. um lágmarksörorku.
V. KAFLI
Fyrirkomulag námsstyrks.
14. gr.
Niðurfelling á hluta námslána við námslok.
Námsstyrkur skal nema 30% niðurfærslu af höfuðstól námslánsins ásamt verðbótum að námi loknu.
Lánþegar skulu hafa ákveðið svigrúm til seinkunar í námi án þess að réttur þeirra til námsstyrks skv. 1. mgr. skerðist. Svigrúm vegna seinkunar er eftirfarandi:
1. Eitt ár umfram þann tíma sem skipulag iðn-, starfs- og aðfaranáms kveður á um.
2. Eitt ár umfram þann tíma sem skipulag grunn- og framhaldsnáms kveður á um.
3. Sex mánuðir umfram þann tíma sem skipulag diplómanáms kveður á um.
4. Tvö ár umfram þann tíma sem skipulag doktorsnáms kveður á um.
Skilgreindar undanþágur frá kröfum um námsframvindu skv. 2. mgr. 13. gr. teljast ekki til seinkunar samkvæmt þessari grein.
15. gr.
Styrkur vegna framfærslu barna.
1. Lánþegi uppfyllir lágmarksnámsframvindukröfur skv. 13. gr. eða fellur undir undanþágur skv. 2. mgr. 13. gr.
2. Lánþegi fer með forsjá barns eða lánþegi er meðlagsskyldur.
Styrkur hvers lánþega vegna framfærslu barns er veittur í samræmi við lánsrétt lánþega og eingöngu í þeim mánuðum sem nám er stundað.
Uppfylli lánþegi ekki kröfur þessarar greinar er sjóðstjórn heimilt að breyta veittum styrk í lán með þeim skilmálum sem mælt er fyrir um í 17. og 20. gr.
VI. KAFLI
Lánakjör, endurgreiðslur námslána, vanskil og fyrningarfrestur.
16. gr.
Almenn lánakjör.
Endurgreiðslur sem falla í gjalddaga eftir að lánþegi andast falla sjálfkrafa niður.
Lánþegar geta við námslok valið um hvort þeir breyti láni sínu í óverðtryggt lán.
Sjóðstjórn skilgreinir í úthlutunarreglum hvað telja beri námslok samkvæmt lögum þessum.
17. gr.
Verðtryggð lán.
Vaxtaálag skal ákveðið og birt í úthlutunarreglum hvers árs. Sjóðstjórn er heimilt að leita til óháðra aðila sem geri tillögur um vaxtaálag.
Þrátt fyrir 1. mgr. verði verðtryggðir vextir ásamt föstu vaxtaálagi aldrei hærri en 4%.
18. gr.
Óverðtryggð lán.
Vaxtaálag skal ákveðið og birt í úthlutunarreglum hvers árs. Sjóðstjórn er heimilt að leita til óháðra aðila sem geri tillögur um vaxtaálag.
Þrátt fyrir 1. mgr. verði óverðtryggðir vextir ásamt föstu vaxtaálagi aldrei hærri en 9%.
19. gr.
Almennt um endurgreiðslur námslána.
Lánþegi getur sótt um að fresta námslokum skv. 1. mgr. í allt að fjögur ár ef lánþegi heldur áfram lánshæfu námi samkvæmt lögum þessum og þiggur ekki námslán á sama tíma.
Endurgreiðslur námslána skulu greiddar mánaðarlega fyrsta dag hvers mánaðar. Heimilt er að innheimta í einu lagi á hverjum gjalddaga endurgreiðslur vegna allra sambærilegra skuldabréfa lánþega.
Lánþega er heimilt að greiða hraðar af láni en mælt er fyrir um í lögum þessum án aukins kostnaðar.
Lánþega ber að greiða kostnað sem hlýst af innheimtu hverrar greiðslu og ofgreiðslu skv. 25. gr.
20. gr.
Endurgreiðslutími námslána háður lántökufjárhæð.
Námslán skulu endurgreidd sem jafngreiðslulán með breytilegum vöxtum með mánaðarlegum endurgreiðslum, fyrsta dag hvers mánaðar.
Hafi námslán ekki verið að fullu greidd á því ári er lánþegi nær 66 ára aldri hefur sjóðstjórn heimild til að gjaldfella lánin.
Hafi námslán ekki verið að fullu greidd á því ári þegar lánþegi nær 66 ára aldri er sjóðstjórn heimilt að gera tímabundna samninga sem kveða á um greiðslu á eftirstöðvum námslánsins sé lánþega það vandkvæðum bundið að mati sjóðstjórnar að endurgreiða námslán af heilsufarsástæðum, sökum fjárhagsörðugleika eða af öðrum sambærilegum ástæðum. Sjóðstjórn er skylt að kynna lánþegum sem náð hafa 66 ára aldri og hafa ekki að fullu greitt lán sitt framangreinda heimild. Slíka samninga skal endurskoða reglulega og a.m.k. á sex mánaða fresti. Nánar skal kveðið á um skilyrði og framkvæmd samninga í úthlutunarreglum.
Ef um áframhaldandi erfiðleika er að ræða hjá lánþega og sjóðstjórn telur ljóst að aðstæður hans séu með þeim hætti að hann geti ekki greitt höfuðstól námsláns eða hluta hans skal stjórnin afskrifa höfuðstól lánþega að hluta eða öllu leyti. Afskrift er bundin því skilyrði að lánþegi hafi að lágmarki í eitt ár staðið við samninginn. Kostnaður við afskriftir skal greiðast úr ríkissjóði en ekki fara inn í vaxtaálag námslána. Nánar skal mælt fyrir um skilyrði og framkvæmd afskrifta í úthlutunarreglum.
21. gr.
Tekjutengd endurgreiðsla námslána.
Taki lánþegar fleiri námslán hjá Menntasjóði námsmanna eftir 35 ára aldur eða ljúki námi eftir þann aldur geta þeir valið að skuldbreyta öllum námslánum sínum í samræmi við 20. gr. eða greiða samtímis af þeim öllum.
Lánstími námsláns er ótilgreindur en greitt skal af námsláni þar til skuldin er að fullu greidd þegar lánþegi velur tekjutengda endurgreiðslu skv. 1. mgr.
Tekjutengd endurgreiðsla ákvarðast í tvennu lagi, annars vegar er föst afborgun sem innheimt er mánaðarlega, óháð tekjum, og hins vegar tekjutengd afborgun sem einnig er innheimt mánaðarlega og er háð tekjum síðustu tveggja ára.
Föst afborgun er 10.000 kr., bundin vísitölu neysluverðs með grunnvísitöluna 470,5 stig. Fasta afborgunin breytist í hlutfalli við breytingar á vísitölunni frá grunnvísitölu til fyrstu endurgreiðslu og síðan í hlutfalli við breytingar á vísitölunni milli endurgreiðslna. Föst afborgun skal greidd mánaðarlega fyrsta dag hvers mánaðar.
Mánaðarleg tekjutengd afborgun er 0,3125% af tekjustofni lánþega. Fyrstu átta mánuði endurgreiðsluársins er miðað við tekjustofn lánþega tveimur árum á undan endurgreiðsluári, en síðustu fjóra mánuði endurgreiðsluársins er miðað við tekjustofn lánþega árið á undan endurgreiðsluári. Tekjutengd afborgun skal greidd mánaðarlega fyrsta dag hvers mánaðar. Frá tekjutengdri afborgun samkvæmt þessari málsgrein dregst föst afborgun skv. 5. mgr.
22. gr.
Tekjur.
Velji lánþegi að endurgreiða námslán í samræmi við 21. gr. og lánþegi er ekki skattskyldur á Íslandi af öllum tekjum sínum og eignum skal lánþegi skila inn staðfestum upplýsingum um tekjur erlendis innan árs frá námslokum og a.m.k. árlega eftir það. Geri lánþegi það ekki eða upplýsingar lánþega eru taldar ósennilegar að mati sjóðstjórnar og ekki unnt að sannreyna tekjustofn er sjóðstjórn heimilt að skuldbreyta láni lánþega á þann hátt að endurgreiðslu sé hagað í samræmi við 20. gr., að undangenginni viðvörun um skuldbreytingu.
Heimilt er í úthlutunarreglum að mæla nánar fyrir um framkvæmd 2. mgr., m.a. með því að setja skilyrði um frest til að skila inn gögnum.
23. gr.
Frestun á endurgreiðslu.
Sömu heimild til að veita frestun á tekjutengdri afborgun skv. 6. mgr. 21. gr. hefur sjóðstjórn ef skyndileg og veruleg breyting hefur orðið á högum lánþega þannig að tekjustofn vegna tekna á fyrri árum gefur ekki rétta mynd af fjárhag lánþega á endurgreiðsluárinu.
Lánþegi sem sækir um frestun samkvæmt þessari grein skal leggja sjóðstjórn til þær upplýsingar sem stjórnin telur skipta máli. Umsóknin skal berast Menntasjóði námsmanna eigi síðar en 30 dögum eftir gjalddaga afborgunar. Umsókn um undanþágu skv. 1. og 2. mgr. frestar innheimtu þeirrar afborgunar sem umsóknin snýr að.
24. gr.
Vanskil.
Gjaldfallnar endurgreiðslur eru aðfararhæfar án undangengins dóms eða sáttar ef um vanskil er að ræða. Sama gildir um eftirstöðvar skuldar sem felld hefur verið í gjalddaga.
25. gr.
Endurgreiðsla ofgreiddra fjárhæða.
Hafi lánþegi sótt um námslán á næstu námsönn á eftir þeirri sem ofgreiðslan tilheyrði er Menntasjóði námsmanna heimilt að skuldajafna skuld vegna ofgreiðslu við óafgreitt námslán sem lánþegi á von á.
Sé skuldajöfnun skv. 2. mgr. ekki tæk hefur lánþegi val um að staðgreiða ofgreiðsluna eða samþykkja sérstakt endurgreiðsluskuldabréf sem er óverðtryggt og ber vexti í samræmi við ákvörðun Seðlabanka Íslands um almenna vexti af óverðtryggðum lánum. Skal greiðslutími að meginreglu til ekki vera lengri en 18 mánuðir.
26. gr.
Fyrningarfrestur.
Ákvæði laga um gjaldþrotaskipti o.fl. um lengd fyrningarfrests og sérreglur þeirra um slit fyrningar gilda ekki um námslán.
VII. KAFLI
Sértækar aðgerðir.
27. gr.
Sérstök ívilnun námsgreina.
Skilyrði fyrir ívilnunum skv. 1. mgr. eru að:
1. upplýsingar liggi fyrir um viðvarandi skort í starfsstétt eða að skortur sé fyrirsjáanlegur,
2. fyrir liggi skýrsla unnin af stjórnvöldum í samráði við hlutaðeigandi atvinnurekendur um mikilvægi þess að bregðast við aðstæðum skv. 1. tölul.,
3. ívilnun leiði til þess að þeir sem ljúki námi í námsgreininni nýti menntun sína til starfa í starfsstétt skv. 1. tölul. og
4. fjármagn sé aukið til Menntasjóðs námsmanna til að standa undir ívilnuninni.
28. gr.
Sérstök ívilnun vegna námsgreina á sérstökum svæðum.
Skilyrði fyrir ívilnunum skv. 1. mgr. eru að:
1. fyrir liggi tillaga frá sveitarfélagi eða sveitarfélögum til stjórnvalda um þörf á menntuðu fólki í byggð sinni,
2. fyrir liggi skýrsla unnin af Byggðastofnun í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga um mikilvægi þess að bregðast við aðstæðum skv. 1. tölul.,
3. lánþegi hafi lokið námi og sé búsettur á skilgreindu svæði og nýti menntun sína þar að lágmarki í 50% starfshlutfalli í a.m.k. tvö ár og
4. fjármagn sé aukið til Menntasjóðs námsmanna til að standa undir ívilnuninni.
VIII. KAFLI
Menntasjóður námsmanna. Málskotsnefnd.
29. gr.
Hlutverk og helstu verkefni.
Helstu verkefni Menntasjóðsins eru:
1. að veita námsmönnum námsstyrki,
2. að veita námsmönnum námslán og annast innheimtu þeirra,
3. að annast gagnasöfnun varðandi þörf námsmanna á námslánum,
4. að afla upplýsinga um námsskipan og námstíma þeirra skóla þar sem lánshæft nám er stundað,
5. að hafa eftirlit með árangri og ástundun námsmanna,
6. að annast útgáfustarfsemi og aðra kynningu á starfsemi sjóðsins.
30. gr.
Sjóðstjórn.
Stjórnin skal skipuð til tveggja ára í senn. Skipunartími fulltrúa ráðherra og ráðherra er fer með fjárreiður ríkisins skal þó takmarkaður við embættistíma þeirra ráðherra sem skipuðu þá eða tilnefndu, sitji þeir skemur. Varamenn í stjórn sjóðsins skulu skipaðir með sama hætti og til jafn langs tíma.
Verði atkvæði jöfn við afgreiðslu mála í stjórn sjóðsins sker atkvæði formanns úr.
Helstu verkefni stjórnar Menntasjóðsins eru:
1. að móta áherslur í starfi Menntasjóðsins ásamt framkvæmdastjóra,
2. að hafa eftirlit með starfsemi og fjárreiðum Menntasjóðsins,
3. að gera tillögur til ráðherra að úthlutunarreglum, sbr. 36. gr.,
4. að skera úr vafamálum er varða einstaka lánþega og öðrum málum.
Ákvörðunum sjóðstjórnar varðandi málefni einstakra lánþega, umsækjenda og ábyrgðarmanna má vísa til málskotsnefndar, sbr. 32. gr., innan þriggja mánaða frá tilkynningu um ákvörðun.
Sjóðstjórn er heimilt að skipa undirnefndir úr hópi stjórnarmanna, m.a. til að fjalla um einstök mál og gera tillögur fyrir sjóðstjórn.
Sjóðstjórn er heimilt að fela bankastofnunum, embættum sýslumanna eða embætti ríkisskattstjóra útborgun lána, innheimtu og aðra daglega afgreiðslu.
31. gr.
Framkvæmdastjóri.
32. gr.
Málskotsnefnd.
Nefndin sker úr um hvort ákvarðanir sjóðstjórnar séu í samræmi við ákvæði laga og stjórnvaldsfyrirmæla. Nefndin getur staðfest, breytt eða fellt úr gildi ákvarðanir sjóðstjórnar. Úrskurður nefndarinnar skal vera rökstuddur og verður honum ekki skotið til annarra stjórnvalda. Afl atkvæða ræður niðurstöðu nefndarinnar.
Að kröfu sjóðstjórnar fyrir hönd Menntasjóðs námsmanna getur nefndin frestað réttaráhrifum úrskurðar síns telji hún að hann muni hafa í för með sér veruleg fjárhagsleg áhrif á Menntasjóðinn. Krafa þess efnis skal gerð eigi síðar en 10 dögum frá birtingu úrskurðar. Skal frestun á réttaráhrifum úrskurðar að auki vera bundin því skilyrði að sjóðstjórnin beri málið undir dómstóla innan 30 daga frá frestun og óski þá eftir að það hljóti flýtimeðferð. Frestun réttaráhrifa úrskurðar fellur úr gildi ef mál er ekki höfðað innan 30 daga frestsins. Þegar mál er höfðað vegna úrskurðar málskotsnefndar er henni heimilt að fresta afgreiðslu sambærilegra mála sem til meðferðar eru hjá nefndinni þar til dómur gengur.
Nefndin hefur heimild, að fengnu samþykki ráðherra, til að ráða nefndinni starfslið eða að fela sjálfstætt starfandi aðila að sjá um skrifstofuhald fyrir nefndina. Ráðherra ákveður þóknun nefndarmanna.
Um málsmeðferð að öðru leyti fer eftir stjórnsýslulögum.
33. gr.
Þagnarskylda.
IX. KAFLI
Fjármögnun, rekstur o.fl.
34. gr.
Fjármögnun Menntasjóðs námsmanna.
Menntasjóðnum er heimilt að greiða inn á lán frá Endurlánum ríkissjóðs án viðbótarkostnaðar með samþykki fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Menntasjóðurinn fær framlög til umsýslu og reksturs frá ríkinu. Ríkið leggur jafnframt til fjárframlag vegna styrkgreiðslu til framfærslu barna, niðurfellingar á námslánum og ívilnana.
Sjóðstjórn skal árlega yfirfara og samþykkja fjárhagsáætlanir fyrir sjóðinn á næsta almanaksári með sama hætti og aðrar ríkisstofnanir.
Ársreikningar Menntasjóðsins skulu samþykktir af sjóðstjórn og endurskoðaðir af Ríkisendurskoðun. Þeir skulu birtir í Stjórnartíðindum.
35. gr.
Staðgreiðsla og félagsgjöld.
Menntasjóðnum er skylt að veita reglulega upplýsingar til skattyfirvalda, vegna 14., 15., 27. og 28. gr., en þá í samræmi við 12. gr.
Sjóðstjórn er heimilt, ef hagsmunasamtök námsmanna óska eftir, að draga félagsgjald frá námsláni enda komi ósk lánþega þar að lútandi fram á umsókn hans um námslán.
36. gr.
Úthlutunarreglur.
X. KAFLI
Gildistaka.
37. gr.
Gildistaka.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Lánsréttur lánþega samkvæmt eldri lögum dregst frá lánsrétti samkvæmt lögum þessum.
II.
Ábyrgð ábyrgðarmanns á námslánum teknum í tíð eldri laga fellur niður við andlát hans enda sé lánþegi í skilum við Lánasjóð íslenskra námsmanna.
Lánþegi þarf í tilvikum 1. og 2. mgr. ekki að fá annan ábyrgðarmann nema lánþegi teljist ekki tryggur samkvæmt úthlutunarreglum.
III.
IV.
Ákvæði V. kafla laga þessara taka ekki til námslána sem tekin eru í tíð eldri laga. Nánar skal mæla fyrir um framkvæmd þessa í úthlutunarreglum.
V.
VI.
a. 3,4% á G-lánum.
b. 4,4% á R-lánum.
c. 3,4% á S-lánum.
Lánþegi getur óskað þess að umsaminn hundraðshluti haldist óbreyttur á námslánum teknum í tíð eldri laga. Skal umsókn þess efnis berast Menntasjóði námsmanna.
VII.
VIII.