Ferill 895. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1582 — 895. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um lögbundin verkefni sýslumannsembætta.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hvaða lögbundnu verkefnum sinna sýslumaðurinn á Austurlandi, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra, sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra, sýslumaðurinn á Suðurlandi, sýslumaðurinn á Suðurnesjum, sýslumaðurinn á Vestfjörðum, sýslumaðurinn á Vesturlandi og sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum?
2. Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna hvers sýslumannsembættis og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
Skriflegt svar óskast.