Ferill 900. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1587  —  900. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um lögbundin verkefni lögreglustjóraembætta.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.

     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinna ríkislögreglustjóri, lögreglustjórinn á Austurlandi, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra, lögreglustjórinn á Suðurlandi, lögreglustjórinn á Suðurnesjum, lögreglustjórinn á Vestfjörðum, lögreglustjórinn á Vesturlandi og lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna hvers lögreglustjóraembættis og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.