Ferill 912. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1600  —  912. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis- og auðlindaráðherra um lögbundin verkefni Úrvinnslusjóðs.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Úrvinnslusjóður?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Úrvinnslusjóðs og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.