Ferill 914. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1602  —  914. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis- og auðlindaráðherra um lögbundin verkefni Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Stofnun Vilhjálms Stefánssonar?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


Skriflegt svar óskast.