Ferill 805. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1627  —  805. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Brynjari Níelssyni um kostnað ráðuneytisins við skrifleg svör við fyrirspurnum.


     1.      Hversu margir starfsmenn ráðuneytisins koma að því að undirbúa skrifleg svör við fyrirspurnum þingmanna og hver er áætlaður heildarfjöldi vinnustunda sem í það hefur farið árlega síðastliðin fimm ár?
    Ekki er haldið sérstaklega utan um tíma starfsmanna sem fer í að undirbúa skrifleg svör við fyrirspurnum þingmanna. Svör við fyrirspurnum krefjast mismunandi mikillar vinnu eftir eðli þeirra og umfangi og getur væntanlega numið frá nokkrum klukkustundum upp í nokkra daga fyrir hverja og eina. Í mörgum tilvikum þarf að senda fyrirspurnir til stofnana ráðuneytisins til að fá upplýsingar og því má gera ráð fyrir talsverðri vinnu þar líka.
    Fjöldi fyrirspurna síðustu ár hefur verið milli 39 og 68 ef frá er talið 147. löggjafarþing, sbr. eftirfarandi töflu.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     2.      Hver er heildarkostnaður ráðuneytisins við skrifleg svör við fyrirspurnum frá þingflokki Pírata á yfirstandandi löggjafarþingi og hversu margar vinnustundir starfsmanna hafa farið í að svara þeim?

    Ekki liggur fyrir hver heildarkostnaður ráðuneytisins við skrifleg svör við fyrirspurnum frá þingflokki Pírata á yfirstandandi löggjafarþingi var eða hversu margar vinnustundir starfsmanna hafa farið í að svara þeim. Af 42 skriflegu fyrirspurnum á yfirstandandi löggjafarþingi eru 14 frá þingflokki Pírata eða sem nemur 33,3%.

     3.      Hvað eru fyrirspurnir til skriflegs svars frá hverjum þingmanni í þingflokki Pírata hátt hlutfall slíkra fyrirspurna til ráðherra?
    Fyrirspurnir til skriflegs svars á yfirstandandi löggjafarþingi frá þingflokki Pírata hafa komið frá tveimur þingmönnum, Birni Leví Gunnarssyni 13 (31%) og Jóni Þóri Ólafssyni 1 (2,4%).