Ferill 609. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1682  —  609. mál.
2. umræða.



Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum (rafræn afgreiðsla o.fl.).

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Steinar Örn Steinarsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, Jónas Friðrik Jónsson og Sigurð Örn Bernhöft frá Distu ehf., Hafdísi Hafsteinsdóttur frá ISAVIA, Þorgerði Þráinsdóttur frá Fríhöfninni ehf. og Benedikt S. Benediktsson frá Samtökum verslunar og þjónustu. Nefndinni bárust umsagnir um málið frá Dista ehf., ISAVIA og Samtökum verslunar og þjónustu auk minnisblaðs frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
    Með frumvarpinu eru m.a. lagðar til breytingar sem ætlað er að auka skilvirkni við tollafgreiðslu, annars vegar þannig að tollafgreiðslugengi taki mið af vikugengi í stað daggengis og hins vegar með því að miða í auknum mæli að rafrænni tollafgreiðslu. Með 8. gr. frumvarpsins um vöruvalsreglur fyrir tollfrjálsa áfengisverslun aðila í opinberri eigu er brugðist við áminningarbréfi Eftirlitsstofnunar EFTA frá 28. nóvember 2018 sem fylgt var eftir með rökstuddu áliti stofnunarinnar 22. apríl sl.
    Nauðsynlegt er að breyta gildistökugrein frumvarpsins og leggur nefndin til að lögin öðlist gildi 1. júlí 2020. Breytingartillögu við c-lið 2. gr. frumvarpsins er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif.
    Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Efnismálsliður c-liðar 2. gr. orðist svo: Þegar helgidag eða almennan frídag ber upp á mánudag skal miða tollafgreiðslugengi við opinbert viðmiðunargengi næsta virka dags á undan.
     2.      10. gr. orðist svo:
                      Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2020.


    Brynjar Níelsson, Smári McCarthy, Jón Steindór Valdimarsson og Bryndís Haraldsdóttir skrifa undir nefndarálitið með fyrirvara sem þau munu gera grein fyrir í ræðu.
    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 11. júní 2020.

Óli Björn Kárason,
form.
Brynjar Níelsson,
frsm., með fyrirvara.
Jón Steindór Valdimarsson,
með fyrirvara.
Bryndís Haraldsdóttir,
með fyrirvara.
Oddný G. Harðardóttir. Ólafur Þór Gunnarsson.
Smári McCarthy,
með fyrirvara.
Willum Þór Þórsson.