Ferill 652. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1716  —  652. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um niðurstöður starfshóps um lækkun lífeyristökualdurs tiltekinna starfshópa.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hefur starfshópur sem ráðherra var gert að skipa til að greina með heildstæðum hætti þörf á því að lífeyristökualdur tiltekinna starfshópa verði lægri en almennt tíðkast, á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 127/2016, skilað niðurstöðum sínum? Ef svo er, hverjar voru niðurstöðurnar og hver eru áætluð næstu skref? Ef ekki, hver er staða vinnu starfshópsins?

    Starfshópurinn var skipaður í júní 2016. Hópnum er falið að greina með heildstæðum hætti þörf á því að lífeyristökualdur tiltekinna starfshópa verði lægri en almennt tíðkast. Hópurinn er skipaður fulltrúum fjármála- og efnahagsráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, heildarsamtaka á almennum og opinberum vinnumarkaði og Samtaka atvinnulífsins. Frá því að hópurinn tók til starfa hefur verið unnin greiningarvinna og upplýsingar teknar saman um hvernig þessum málum er háttað í samanburðarlöndum. Í upphafi var gert ráð fyrir að hópurinn lyki störfum í lok árs 2017. Hópurinn hefur ráðist í umfangsmikla greiningarvinnu og m.a. látið vinna sérstaka skýrslu um tilhögun starfstengdrar snemmtöku lífeyris og fjármögnunar hennar í þeim ríkjum sem Ísland er gjarnan borið saman við, einkum Evrópuríkja og annarra OECD-ríkja. Aðilar gera ráð fyrir að starfshópurinn skili niðurstöðu sinni eigi síðar en 1. september 2020.