Ferill 563. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1717  —  563. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um byggingar- og rekstrarkostnað tónlistarhússins Hörpu.


     1.      Hver varð endanlegur heildarkostnaður við byggingu tónlistarhússins Hörpu?
    Alþingi hefur áður verið upplýst um byggingarkostnað Hörpu. Í svari ráðherra við fyrirspurn frá Haraldi Einarssyni um byggingarkostnað Hörpu, sbr. þskj. 1388 í 739. máli á 145. löggjafarþingi, var ítarlega gerð grein fyrir samsetningu kostnaðar og breytingum sem urðu vegna yfirtöku ríkis og Reykjavíkurborgar á verkefninu í kjölfar falls bankakerfisins haustið 2018. Þar kom fram að heildarkostnaður miðað við vísitölu byggingarkostnaðar í mars 2015 var um 20,9 milljarðar kr. og var þá ekki tekið tillit til verðmæti lóðar sem Harpa stendur á að verðmæti um 1,4 milljarðar kr. Staðvirtur heildarkostnaður við byggingu Hörpu án lóðar, miðað við byggingarvísitölu í janúar 2020, er því um 24,9 milljarðar kr. en með lóð um 26,6 milljarðar kr.
    Til viðbótar þessum kostnaði var í fyrra svari gert ráð fyrir að fjármögnunaraðilar hefðu afskrifað u.þ.b. 10 milljarða kr. á verðlagi í mars 2015, eða sem svarar til um 11,9 milljarða kr. á verðlagi í janúar 2020.

     2.      Hvert hefur verið árlegt framlag ríkissjóðs til reksturs Hörpu frá upphafi rekstrar?
    Framlög eigenda Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss, ríkisins og Reykjavíkurborgar, eru af tvennum toga. Í báðum tilvikum nemur hlutdeild ríkisins 54% en hlutdeild Reykjavíkurborgar 46%.
    Annars vegar er um að ræða framlag til endurgreiðslu á byggingarkostnaði og búnaði hússins og rennur það til greiðslu af skuldabréfi sem gefið var út til að endurfjármagna verkefnið í gegnum félagið Hring ehf. Hringur er dótturfélag í samstæðu Hörpu ohf.
    Hins vegar er um að ræða framlög eigenda til rekstrar. Þau hófust árið 2013 er ljóst varð að reksturinn var ekki sjálfbær.
    Við verðlagsreikning framlaga hvers árs er miðað við meðaltal vísitölu neysluverðs viðeigandi árs til janúar 2020 sem er sú vísitala sem miðað er við í verðtryggingu á skuldabréfi félagsins.
    Heildarframlag ríkisins til endurgreiðslu byggingarkostnaðar árin 2011–2019 nemur samtals um 5.088 millj. kr. á verðlagi hvers árs en 5.593 millj. kr. á föstu verðlagi.
    Heildarframlag ríkisins til rekstrar Hörpu árin 2013–2019 nemur samtals um 1.081 millj. kr. á verðlagi hvers árs en á föstu verðlagi 1.144 millj. kr.

     3.      Hvert hefur verið árlegt framlag Reykjavíkurborgar til reksturs Hörpu?
    Heildarframlag Reykjavíkurborgar til endurgreiðslu byggingarkostnaðar árin 2011–2019 nemur samtals um 4.335 millj. kr. á verðlagi hvers árs en 4.765 millj. kr. á föstu verðlagi.
    Heildarframlag Reykjavíkurborgar til rekstrar Hörpu árin 2013–2019 nemur samtals um 921 millj. kr. á verðlagi hvers árs en á föstu verðlagi 974 millj. kr.

     4.      Hver hafa verið árleg fasteignagjöld af tónlistarhúsinu Hörpu frá þeim tíma er þau voru fyrst lögð á fasteignina?
    Heildarfjárhæðin sem Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús ohf. hefur greitt í fasteignagjöld frá opnun hússins 2011 nemur samtals um 1.778 millj. kr. á verðlagi hvers árs en á föstu verðlagi um 1.928 millj. kr.

Sundurliðun á framlögum ríkis og Reykjavíkurborgar til Hörpu og fasteignagjöldum félagsins á verðlagi hvers árs og föstu verðlagi.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.