Ferill 698. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1718 — 698. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um fjárfestingar lífeyrissjóðanna.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvert var heildartap lífeyrissjóða, bæði í sameignar- og séreignarsjóðum, frá og með árinu 2000? Hver var heildarupphæð fjárfestinga þeirra á sama tímabili?
Óskað er eftir því að upplýsingar verði veittar fyrir hvert ár á tímabilinu, greindar niður á hvern sjóð. Þá er þess óskað að miðað sé við innlausnar- eða markaðsverð, svo að upplýsingar séu sem næst gildandi markaðsverði. Jafnframt er þess óskað að upplýsingar um heildartap verði flokkaðar í eftirfarandi flokka:
1. Innlend hlutabréf á almennum markaði – skráð í kauphöll.
2. Innlend hlutabréf á „gráum markaði“ – óskráð bréf.
3. Skuldabréf banka og sparisjóða.
4. Skuldabréf fyrirtækja.
5. Gjaldmiðlavarnarsamningar.
6. Innlendir skuldabréfasjóðir.
7. Innlendir hlutabréfasjóðir.
8. Erlend verðbréf.
9. Innlend veðskuldabréf.
10. Heildarfjárfestingar í fasteignum, þ.m.t.:
a. bein og óbein fjárfesting lífeyrissjóða í fasteignum,
b. skuldabréf/hlutabréf félaga eða sjóða sem fjárfesta í fasteignum,
c. skuldabréf/hlutabréf félaga í fasteignarekstri.
11. Bein útlán lífeyrissjóða til sjóðsfélaga vegna fasteigna.
12. Annað: Framtakssjóðir o.fl.
Við vinnslu svarsins óskaði fjármála- og efnahagsráðuneytið eftir upplýsingum frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands sem hefur eftirlit með að starfsemi lífeyrissjóða og vörsluaðila séreignarsparnaðar sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og reglna settra samkvæmt þeim og er eftirlit með fjárfestingarstefnu hluti þess. Seðlabankinn safnar upplýsingum í tengslum við eftirlitið með lífeyrissjóðum en í svari bankans til ráðuneytisins kemur fram að hann hafi ekki tiltæk gögn til að svara fyrirspurninni með þeirri sundurliðun fjárfestingaflokka og tímabils sem óskað er eftir.
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands útbýr samantekt á öllum ársreikningum lífeyrissjóða og birtir á vefslóðinni: www.fme.is/utgefid-efni/tolulegar-upplysingar/lifeyrismarkadur/. Innihald og uppsetning ársreikninga lífeyrissjóðanna byggist á reglum nr. 335/2015. Sundurliðun fjárfestinga samkvæmt þeim reglum er ekki eins ítarleg og óskað er eftir í fyrirspurninni en skýringar í ársreikningum lífeyrissjóða kunna að veita gleggri mynd fyrir einstaka sjóði.
Vegna eftirlits með fjárfestingum lífeyrissjóða hefur Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands safnað gögnum um ávöxtun lífeyrisdeilda í samræmi við fjárfestingaflokka skv. 36. gr. a laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum. Skipting fjárfestingaflokka samkvæmt þeim lögum er ekki í samræmi við þá sundurliðun sem óskað er eftir í fyrirspurninni.