Ferill 738. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1731  —  738. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur um burðarþolsmat fjarða og hafsvæða fyrir fiskeldi.


     1.      Hvaða firðir og hafsvæði hafa þegar verið burðarþolsmetin, sbr. lög um fiskeldi, nr. 71/2008, og hvert er burðarþol hvers og eins þeirra? Svar óskast sundurliðað eftir fjörðum og hafsvæðum.
    Mat á burðarþoli hefur farið fram á eftirtöldum fjörðum og hafvæðum:

Útgáfuár Svæði Tonn
2015 Arnarfjörður 20.000
2015 Dýrafjörður 10.000
2015 Patreksfjörður, Tálknafjörður og Patreksfjarðarflói 20.000
2016 Berufjörður 10.000
2016 Fáskrúðsfjörður 15.000
2016 Reyðarfjörður 20.000
2017 Ísafjarðardjúp 30.000
2017 Stöðvarfjörður 7.000
2018 Seyðisfjörður 10.000
2018 Önundarfjörður 2.500
Samtals 2015–2018 144.500

     2.      Er unnið að burðarþolsmati á fleiri fjörðum og hafsvæðum? Ef svo er, hverjum og hvenær má vænta niðurstöðu?
    Nei, Hafrannsóknastofnun hefur þó stundað ýmsar mælingar og sinnt gagnsöfnun í fjörðum og á hafsvæðum sem nýtast við burðarþolsmat.

     3.      Hefur ráðherra ákveðið hvaða firði og hafsvæði skuli meta til burðarþols og hvenær það skuli gert, sbr. 6. gr. b laga um fiskeldi?
    Ráðherra hefur ekki tekið ákvörðun um að láta fara fram mat á burðarþoli fjarða og hafsvæða eftir gildistöku laga nr. 101/2019, um breytingu á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi.