Ferill 740. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1761 — 740. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Ísleifssyni um greiðslur stjórnvaldssekta.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hafa stjórnvaldssektir sem eru tilgreindar í svari ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn á þskj. 1266 fengist greiddar? Ef ekki að öllu leyti, hvers vegna ekki? Til hvaða aðgerða hefur verið gripið til að tryggja innheimtu þeirra?
Eins og fram kemur í greinargerð með fyrirspurn þessari tengist hún fyrri fyrirspurn þingmannsins á þskj. 921, en ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar taldi sér ekki fært að svara því hvort umræddar stjórnvaldssektir hefðu verið greiddar með vísan í 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Í úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál, nr. 880/2020, kemur fram að nefndin telur að upplýsingar um hvort sektir sem lagðar voru á svokölluð smálánafyrirtæki hafi fengist innheimtar teljist almennt séð ekki þess eðlis að þær njóti verndar 9. gr. upplýsingalaga. Í því ljósi hefur þessi hluti fyrirspurnarinnar verið lagður fram að nýju.
Kæra Neytendasamtakanna vegna afgreiðslu ríkisskattstjóra á beiðni þeirra um aðgang að sambærilegum gögnum er nú til skoðunar hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál og hefur nefndin ekki enn tekið afstöðu til álitaefnisins. Þegar af þeirri ástæðu þykja forsendur ekki vera til staðar til að unnt sé að svara fyrirspurninni. Það skal þó tekið fram að auk takmarkana á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna skv. 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, hvílir sérstök þagnarskylda á innheimtumönnum ríkissjóðs, sbr. þágildandi ákvæði 1. mgr. 117. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, og 1. mgr. 44. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, sjá nú sérstaka þagnarskyldureglu í 20. gr. nýrra laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda, nr. 150/2019. Þá er enga heimild að finna í lögum um aðgang almennings að upplýsingum um greiðslu skatta, gjalda eða sekta einstakra gjaldenda eða aðgang að upplýsingum um mögulegar innheimtuaðgerðir sem beint hefur verið að einstökum gjaldendum. Almennt hefur verið litið þannig á að hagsmunir gjaldenda um að trúnaður ríki um þessar upplýsingar séu ríkari en hagsmunir almennings af því að fá aðgang að upplýsingunum.