Ferill 846. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1778 — 846. mál.
Svar
félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Vinnueftirlits ríkisins.
1. Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Vinnueftirlit ríkisins?
Vinnueftirlitið starfar samkvæmt lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, sbr. einkum XII. kafla laganna. Meginhlutverk þess er að tryggja að allir komi heilir heim úr vinnu. Lykilþáttur í starfsemi stofnunarinnar er að stuðla að öruggu og heilsusamlegu vinnuumhverfi með áherslu á forvarnir og eftirlit með vinnuumhverfi vinnustaða og með vinnuvélum og tækjum, sbr. 75. gr. laganna. Einnig annast stofnunin fræðslu um vinnuvernd, virka innleiðingu öryggismenningar á vinnustöðum og markvissa aðferða í vinnuverndarstarfi. Vinnueftirlitið tekur jafnframt þátt í rannsóknastarfi á sviði vinnuverndar. Þá hefur Vinnueftirlitinu verið falið markaðseftirlit með vélum, tækjum og búnaði sem falla undir lögin, sbr. k-lið 75. gr. og 48. gr. a laganna.
2. Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Vinnueftirlits ríkisins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
Vinnueftirlitið fékk heimild samkvæmt fjárlögum fyrir útgjöldum upp á 1.057.400.000 kr. fyrir árið 2020 en stofnunin áætlaði á móti útgjöld upp á 991.220.074 kr. Mismunurinn liggur í því að stofnunin þurfti að gera ráð fyrir í sínum rekstri að greiða til baka uppsafnaðan halla frá árunum 2017–2019 en einnig þurfti að bregðast við lækkun tekna með frekari samdrætti í útgjöldum stofnunarinnar.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.