Ferill 870. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1828  —  870. mál.




Svar


mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra.

     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra?
    Skv. 2. gr. laga um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, nr. 129/1990, er hlutverk Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra að annast:
     a.      rannsóknir á íslensku táknmáli,
     b.      kennslu táknmáls,
     c.      táknmálstúlkun,
     d.      aðra þjónustu.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra er 225,1 millj. kr. sem skiptist á verkefni stofnunarinnar samkvæmt fjárlögum 2020 með eftirfarandi hætti:
     a.      rannsóknir á íslensku táknmáli: 21,3 millj. kr.
     b.      kennsla táknmáls: 86,1 millj. kr.
     c.      táknmálstúlkun: 106,3 millj. kr.
     d.      önnur verkefni: 11,4 millj. kr.