Ferill 751. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1842  —  751. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Skattsins.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Skatturinn?
     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Skattsins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?


    Kveðið er á um lögbundin verkefni Skattsins í 101., 102. og 111. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, 25. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, 26. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, 16. gr. laga um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996, 3. gr. laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda, nr. 150/2019, og 38. gr. tollalaga, nr. 88/2005.
    Samkvæmt lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, skal sýna skiptingu fjárheimilda eftir málefnasviðum og málaflokkum í fjárlögum og er kostnaði því deilt niður með þeim hætti í fjárlögum fremur en á hvert lögbundið verkefni. Starfsemi Skattsins fellur undir málaflokk 5.10 Skattar og innheimta og samkvæmt fylgiriti fjárlaga fyrir árið 2020 er fjárveiting til stofnunarinnar 7.518,5 millj. kr.