Ferill 756. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1847  —  756. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Framkvæmdasýslu ríkisins.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Framkvæmdasýsla ríkisins?
    Framkvæmdasýsla ríkisins starfar samkvæmt lögum nr. 84/2001, um skipan opinberra framkvæmda, þar sem kveðið er á um hlutverk og verkefni stofnunarinnar.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Framkvæmdasýslu ríkisins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Samkvæmt lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, skal sýna skiptingu fjárheimilda eftir málefnasviðum og málaflokkum í fjárlögum og er kostnaði því deilt niður með þeim hætti í fjárlögum fremur en á hvert lögbundið verkefni. Starfsemi Fjársýslu ríkisins fellur undir málaflokk 5.20 Eignaumsýsla ríkisins og samkvæmt fylgiriti með fjárlögum fyrir árið 2020 er fjárveiting til stofnunarinnar 504 millj. kr. sem fjármögnuð er með rekstrartekjum hennar.