Ferill 757. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1848  —  757. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Fjársýslu ríkisins.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Fjársýsla ríkisins?
    Fjársýsla ríkisins starfar samkvæmt lögum nr. 123/2015, um opinber fjármál. Í 64. gr. þeirra laga er kveðið á um hlutverk og verkefni stofnunarinnar.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Fjársýslu ríkisins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Samkvæmt lögum um opinber fjármál skal sýna skiptingu fjárheimilda eftir málefnasviðum og málaflokkum í fjárlögum og er kostnaði því deilt niður með þeim hætti í fjárlögum fremur en á hvert lögbundið verkefni. Starfsemi Fjársýslu ríkisins fellur undir málaflokk 5.30 Fjármálaumsýsla ríkisins og samkvæmt fylgiriti fjárlaga fyrir árið 2020 er fjárveiting til stofnunarinnar 2.079 millj. kr.