Ferill 819. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1887  —  819. mál.




Svar


ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Orkustofnunar.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Orkustofnun?
    Orkustofnun starfar samkvæmt lögum nr. 87/2003, um Orkustofnun, og er þar kveðið á um lögbundin verkefni stofnunarinnar. Auk þess fer stofnunin með lögbundin verkefni samkvæmt eftirfarandi sérlögum:
    Raforkulögum, nr. 65/2003.
    Orkulögum, nr. 58/1967.
    Vatnalögum, nr. 15/1923.
    Lögum nr. 73/1990, um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins.
    Lögum nr. 57/1998, um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu.
    Lögum nr. 13/2001, um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis.
    Lögum nr. 30/2008, um upprunaábyrgð á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum o.fl.
    Lögum nr. 98/2004, um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku.
    Lögum nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.
    Lögum nr. 40/2013, um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi.
    Um hlutverk og verkefni Orkustofnunar er nánar vísað til heimasíðu stofnunarinnar: www.orkustofnun.is.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Orkustofnunar og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Kostnaði er ekki deilt niður á hvert lögbundið verkefni í fjárlögum, heldur er gerð grein fyrir fjárheimildum vegna hvers málefnasviðs og málaflokks og þeim skipt niður í fjárveitingar til einstakra verkefna og ríkisaðila sem birtast í fylgiriti fjárlaga hverju sinni. Orkustofnun heyrir undir málefnasvið 15 og málaflokk 15.10. Samkvæmt fylgiriti fjárlaga 2020 er gert ráð fyrir að stofnunin hafi til ráðstöfunar 744,6 millj. kr. til að sinna lögbundnum verkefnum sínum. Skiptist framlagið annars vegar í 511,8 millj. kr. framlag úr ríkissjóði og hins vegar 232,8 m.kr. rekstrartekjur.