Ferill 897. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1895  —  897. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Fangelsismálastofnunar ríkisins.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Fangelsismálastofnun ríkisins?
    Lögbundin verkefni Fangelsismálastofnunar ríkisins eru fyrst og fremst tilgreind í lögum um fullnustu refsinga, nr. 15/2016.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Fangelsismálastofnunar ríkisins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Heildarfjárveiting til Fangelsismálastofnunar ríkisins samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020 er 2.211,3 millj. kr. Hvorki er í lögum um opinber fjármál, gildandi fjárlögum frá Alþingi né bókhaldi stofnana gert ráð fyrir að fjárreiður þeirra séu sundurgreindar eftir einstökum lögbundnum verkefnum.