Ferill 899. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1897  —  899. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Útlendingastofnunar.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Útlendingastofnun?
    Í lögum um útlendinga, nr. 80/2016, er kveðið á um að starfrækja skuli sérstaka stofnun, Útlendingastofnun, undir yfirstjórn ráðherra og að stofnunin annist, ásamt fleirum, framkvæmd laganna. Í lögunum er svo nánar kveðið á um hlutverk stofnunarinnar.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Útlendingastofnunar og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Heildarfjárveiting til útlendingamála samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020 er 4.030,8 millj. kr. Þar er svo nánar greint á milli fjárframlaga til kærunefndar útlendingamála, Útlendingastofnunar og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Fjárframlög til Útlendingastofnunar eru 587,3 millj. kr. Hvorki er í lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, gildandi fjárlögum frá Alþingi né í bókhaldi stofnana gert ráð fyrir að fjárreiður þeirra séu sundurgreindar eftir einstökum lögbundnum verkefnum.