Ferill 625. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1900  —  625. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Ísleifssyni um raunverulega eigendur Arion banka.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hverjir eru raunverulegir eigendur Arion banka hf., kt. 581008-0150, í skilningi laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka?

    Um skráningu raunverulegra eigenda fer eftir lögum nr. 82/2019 um sama efni. Samkvæmt nefndum lögum er það fyrirtækjaskrá sem skráir og heldur skrá um raunverulega eigendur skráningarskyldra lögaðila. Málefni fyrirtækjaskrár heyra undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Er því góðfúslega bent á að rétt sé að beina fyrirspurninni til þess ráðuneytis.