Ferill 895. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1906  —  895. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni sýslumannsembætta.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinna sýslumaðurinn á Austurlandi, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra, sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra, sýslumaðurinn á Suðurlandi, sýslumaðurinn á Suðurnesjum, sýslumaðurinn á Vestfjörðum, sýslumaðurinn á Vesturlandi og sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum?
    Í lögum um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, nr. 50/2014, er kveðið á um að sýslumenn fara með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, hver í sínu umdæmi, eftir því sem lög og reglugerðir eða önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um. Þar á meðal fara þeir með innheimtu opinberra gjalda, að því leyti sem hún er ekki falin öðrum. Um sérverkefni sýslumanna má finna upplýsingar á vef sýslumannsembættanna, www.syslumenn.is.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna hvers sýslumannsembættis og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Heildarfjárveiting til sýslumanna samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020 eru 3.252,2 millj. kr. Hvorki er í lögum um opinber fjármál, gildandi fjárlögum frá Alþingi, né í bókhaldi stofnana gert ráð fyrir að fjárreiður þeirra séu sundurgreindar eftir einstökum lögbundnum verkefnum.