Ferill 610. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1937 — 610. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á samkeppnislögum, nr. 44/2005, með síðari breytingum
(almenn endurskoðun og norrænn samstarfssamningur).
(Eftir 2. umræðu, 29. júní.)
1. gr.
2. gr.
a. Á eftir orðunum „af stjórn stofnunarinnar“ í 1. málsl. kemur: til fimm ára í senn.
b. Á eftir 1. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Aðeins er hægt að ráða sama mann forstjóra tvisvar sinnum.
3. gr.
Samkeppniseftirlitið skal gefa út ársskýrslu um störf sín.
4. gr.
Bann skv. 10. og 12. gr. gildir ekki ef samningar, samþykktir, samstilltar aðgerðir eða ákvarðanir fyrirtækja eða samtaka fyrirtækja:
a. stuðla að bættri framleiðslu eða dreifingu á vöru eða þjónustu eða efla tæknilegar og efnahagslegar framfarir,
b. veita neytendum sanngjarna hlutdeild í ávinningi sem af þeim hlýst,
c. leggja ekki höft á hlutaðeigandi fyrirtæki sem óþörf eru til að settum markmiðum verði náð og
d. veita fyrirtækjunum ekki færi á að koma í veg fyrir samkeppni að því er varðar verulegan hluta framleiðsluvaranna eða þjónustunnar sem um er að ræða.
Samkeppniseftirlitið skal gefa út leiðbeiningar um undanþágur skv. 1. mgr.
5. gr.
a. Í stað fjárhæðanna „2 milljarðar kr.“ og „200 millj. kr.“ í 1. mgr. kemur: 3 milljarðar kr.; og: 300 millj. kr.
b. C-liður 6. mgr. orðast svo: Aðilar samrunans starfa ekki á sama sölustigi (lóðréttur samruni) og markaðshlutdeild hvers þeirra á viðkomandi mörkuðum er minni en 40%.
c. Á eftir 6. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Samkeppniseftirlitið getur veitt samrunaaðilum heimild til að tilkynna samruna með styttri tilkynningu þótt samruninn uppfylli ekki skilyrði a–d-liðar 6. mgr.
d. B-liður 7. mgr. orðast svo: Lýsing á vöru- eða þjónustumörkuðum og landfræðilegum mörkuðum sem samruninn hefur áhrif á, hvaða fyrirtæki eru helstu þátttakendur á viðkomandi mörkuðum og rökstutt mat á markaðshlutdeild samrunaaðila.
e. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Samkeppniseftirlitið getur veitt undanþágu frá efniskröfum a–d-liðar 8. mgr.
6. gr.
7. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Samkeppniseftirlitið skal innan 25 virkra daga tilkynna þeim aðila sem sent hefur stofnuninni fullnægjandi samrunatilkynningu ef hún telur ástæður til frekari rannsóknar á samkeppnislegum áhrifum samruna. Berist tilkynning frá Samkeppniseftirlitinu skv. 1. málsl. ekki innan tilskilins frests getur Samkeppniseftirlitið ekki ógilt samrunann. Ákvörðun um ógildingu samruna skal taka eigi síðar en 90 virkum dögum eftir að tilkynning skv. 1. málsl. hefur verið send þeim aðila sem tilkynnti um samruna. Setji samrunaaðilar, sem óska eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið, fram möguleg skilyrði vegna samrunans á 55. virka degi rannsóknar eftir að tilkynning skv. 1. málsl. var send þeim aðila sem tilkynnti um samruna, eða síðar, framlengist frestur til rannsóknar samrunans sjálfkrafa um 15 virka daga. Óski samrunaaðilar þess er Samkeppniseftirlitinu heimilt að framlengja framangreinda fresti til rannsóknar samruna um allt að 20 virka daga.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Frestir samkvæmt ákvæði þessu byrja að líða fyrsta virka dag eftir viðkomandi tímamark.
8. gr.
Ef Samkeppniseftirlitið hefur til rannsóknar háttsemi sem kann að fara gegn ákvæðum 10.–12. gr. og hlutaðeigandi fyrirtæki eða samtök fyrirtækja bjóðast til að taka á sig skuldbindingar sem Samkeppniseftirlitið metur að bindi enda á samkeppnistakmarkanir er Samkeppniseftirlitinu heimilt að taka ákvörðun um að ljúka máli með sátt um þær skuldbindingar. Heimilt er að samþykkja skuldbindingar til tiltekins tíma.
Samkeppniseftirlitinu er heimilt, að fenginni beiðni aðila eða að eigin frumkvæði, að hefja málsmeðferð að nýju:
a. ef verulegar breytingar hafa orðið á þeim málsatvikum sem liggja til grundvallar ákvörðun,
b. ef hlutaðeigandi fyrirtæki efna ekki skuldbindingar sínar, eða
c. ef ákvörðunin er byggð á ófullnægjandi, röngum eða villandi upplýsingum sem aðilar hafa látið í té.
9. gr.
Fyrirtæki sem tilkynnir samruna skv. 1. mgr. 17. gr. a skal greiða samrunagjald að fjárhæð 500.000 kr. fyrir hverja samrunatilkynningu. Fyrirtæki sem tilkynnir samruna skv. 6. mgr. 17. gr. a skal greiða samrunagjald að fjárhæð 200.000 kr. fyrir hverja samrunatilkynningu. Fyrirtæki sem tilkynnir samruna samkvæmt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins á grundvelli 3. mgr. 17. gr. b skal ekki greiða samrunagjald. Samrunagjald er greitt við afhendingu samrunatilkynningar og rennur til Samkeppniseftirlitsins.
10. gr.
Ákvæði þessarar greinar um upplýsingaskyldu gilda einnig um upplýsingar og gögn sem krafist er af Samkeppniseftirlitinu í samræmi við skuldbindingar Íslands samkvæmt milliríkjasamningum.
11. gr.
12. gr.
13. gr.
14. gr.
Beri aðili ákvörðun Samkeppniseftirlitsins undir dómstóla án þess að úrskurður áfrýjunarnefndar liggi fyrir skal mál höfðað innan sex mánaða frá því að aðili fékk vitneskju um ákvörðunina.
15. gr.
16. gr.