Ferill 734. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1939 — 734. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011, með síðari breytingum (niðurlagning flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara).
(Eftir 2. umræðu, 29. júní.)
1. gr.
2. gr.
III. kafli nær til jöfnunarstyrkja vegna flutningskostnaðar á olíuvörum, þó ekki olíum ætluðum til útflutnings, svo sem til millilandasiglinga og erlendra skipa. Ráðherra skal setja nánari reglur um þá flokka olíuvara sem heimilt er að styrkja.
3. gr.
a. Við 2. tölul. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Flutningsjöfnun getur einnig átt við aðgerð sem miðar að því að veita söluaðilum olíuvara styrki vegna flutnings á olíuvörum til svæða sem búa við skerta samkeppnisstöðu vegna landfræðilegra og lýðfræðilegra aðstæðna.
b. Við 3. tölul. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Flutningsjöfnunarstyrkur getur einnig átt við styrk sem veittur er söluaðilum olíuvara sem starfrækja sölustaði á svæðum sem búa við skerta samkeppnisstöðu vegna landfræðilegra og lýðfræðilegra aðstæðna.
4. gr.
5. gr.
Styrkir til jöfnunar á flutningskostnaði olíuvara.
Úthlutun styrkja skal ákvörðuð í samræmi við þá heildarfjárhæð sem fyrirhugað er að veita til jöfnunar á flutningskostnaði olíuvara í fjárlögum ár hvert, selt magn olíuvara á viðkomandi sölustað og byggðastuðul sem skal endurspegla samkeppnisstöðu svæðis í byggðalegu tilliti að mati Byggðastofnunar.
Að fenginni umsögn Byggðastofnunar skal ráðherra setja nánari reglur um ákvörðun, fyrirkomulag og útreikning styrkja samkvæmt ákvæði þessu. Í reglunum skal landsvæðum eða byggðalögum ákvarðaður sérstakur byggðastuðull sem útreikningur flutningsjöfnunarstyrks skal m.a. byggjast á, sbr. 2. mgr. Reglurnar skulu tryggja að við úthlutun styrkja sé gætt að sjónarmiðum um jafnræði, hlutlægni og gagnsæi.
6. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Byggðastofnun annast framkvæmd styrkveitinga skv. II. og III. kafla. Umsókn um flutningsjöfnunarstyrk til framleiðenda skv. II. kafla skal fylgja greinargerð um flutningsjöfnun, líkt og nánar er kveðið á um í reglugerð, þar sem fram koma allar upplýsingar og tekur endurgreiðsla vegna flutningskostnaðar mið af henni. Ráðherra skal í reglugerð kveða á um þau gögn sem fylgja skulu umsókn um flutningsjöfnunarstyrk til söluaðila olíuvara skv. III. kafla.
b. Við 4. mgr. bætist: vegna styrkja skv. II. kafla.
c. 5. mgr. orðast svo:
Styrkveitingar skv. II. kafla eru í formi endurgreiðslu gegn framlögðum reikningum. Styrkveitingar skv. III. kafla eru í formi fjárgreiðslu.
d. Við 6. mgr. bætist: og jöfnun flutningskostnaðar olíuvara.
7. gr.
a. Á eftir orðinu „flutningsjöfnunarstyrk“ í 1. mgr. kemur: skv. II. og III. kafla.
b. Á eftir orðunum „fjárhæð flutningsjöfnunarstyrks“ í 2. mgr. kemur: skv. II. kafla.
8. gr.
a. Á eftir orðinu „flutningskostnaðar“ kemur: skv. II. kafla.
b. Við bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Í skýrslunni skal einnig fjallað um flutningsjöfnunarstyrki til söluaðila olíuvara skv. III. kafla, fjölda umsækjenda á styrktímabilinu, fjölda samþykktra styrkumsókna, heildarfjárhæð styrkveitinga og fjárhæð tíu hæstu styrkja. Upplýsingarnar skulu jafnframt vera sundurliðaðar eftir landshlutum.
9. gr.
Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara, nr. 103/1994.