Ferill 949. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2020  —  949. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Oddnýju G. Harðardóttur um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu.


     1.      Hve margir einstaklingar með skerta starfsgetu, sbr. lög um jafna meðferð á vinnumarkaði, starfa í dómsmálaráðuneytinu?
    Í ráðuneytinu starfar enginn starfsmaður með skerta starfsgetu um þessar mundir.

     2.      Hefur stefna verið mótuð fyrir ráðuneytið um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu?
    Ráðuneytið hefur ekki mótað stefnu um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu. Í mannauðsstefnu Stjórnarráðsins kemur fram að allt starfsfólk á að eiga sömu möguleika á að geta nýtt hæfileika sína í starfi og skal ekki sæta mismunun af nokkrum toga. Þetta tekur m.a. til starfsfólks með skerta starfsgetu.