Ferill 977. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2042 — 977. mál.
Fyrirspurn
til utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra um sendiráð og ræðismenn Íslands.
Frá Ingu Sæland.
1. Í hvaða erlendu ríkjum og ríkjasamböndum er Ísland með sendiráð og hvenær voru þau stofnuð?
2. Hverjir eru sendiherrar Íslands í sendiráðum í einstökum ríkjum og ríkjasamböndum og hvenær hófu þeir störf í viðkomandi sendiráðum?
3. Hver er starfsmannafjöldi hvers sendiráðs Íslands?
4. Hvernig hefur starfsmannafjöldi hvers sendiráðs Íslands í ríki eða ríkjasambandi þróast frá stofnun þess?
5. Í hvaða ríkjum og ríkjasamböndum er Ísland með ræðismenn?
6. Hverjir eru ræðismenn Íslands og hvenær hófu þeir störf?
Skriflegt svar óskast.